Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Á námskeiðinu verður fjallað um hvers konar hagsmunatengsl geta gert starfsfólk ríkis og sveitarfélaga vanhæft til að koma að meðferð mála í stjórnsýslunni og taka ákvarðanir í þeim.
Farið verður yfir tilgang reglanna, um hvaða starfsfólk það gildir og hvernig á að bera sig að þegar upp koma álitamál um hæfi einstakra starfsmanna.
Einnig verður leitast við að svara spurningum á borð við í hvaða tilvikum starfsfólk verði helst vanhæft og hvort til dæmis vinátta eða kunningsskapur við aðila máls getur gert starfsmann vanhæfan til að koma að því.
Þá verður gerð grein fyrir þeim mun sem er á reglum um hæfi starfsfólks ríkisins og sveitarfélaga og fjallað sérstaklega um afleiðingar þess þegar vanhæfur starfsmaður kemur að máli.
Umfjöllunin verður að miklu leyti studd dæmum úr dómaframkvæmd og álitum umboðsmanns Alþingis.
Að vita hverskonar hagsmunatengsl geta komið upp milli starfsfólks ríkis og sveitarfélaga
Að þekkja mun á reglum um hæfi starfsfólks ríkis og sveitarfélaga
Að vita hvernig skuli bera sig að þegar upp koma álitamál um hæfi einstakra starfsmanna
Að vita hverskonar hagsmunatengsl geta komið upp milli starfsfólks ríkis og sveitarfélaga
Að þekkja mun á reglum um hæfi starfsfólks ríkis og sveitarfélaga
Að vita hvernig skuli bera sig að þegar upp koma álitamál um hæfi einstakra starfsmanna
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða
| Dagsetning | Dagskrá | Tími | Kennari |
|---|---|---|---|
| 30.09.2025 | Hvenær verður starfsfólk hjá ríki og sveitarfélögum vanhæft til að fara með mál? | 09:00 | Kjartan Bjarni Björgvinsson |