Aftur í námskeið

Jákvæð vinnustaðamenning skiptir máli!

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Góð og uppbyggjandi vinnustaðamenning er grunnur að vellíðan í starfi. Jákvæð vinnustaðamenning getur haft mikil áhrif á starfsánægju, helgun sem leiðir til betri frammistöðu fyrirtækja og stofnana. Jákvæð menning á vinnustað spilar stærstan þátt í því að halda í gott starfsfólk.

Á þessu námskeiði verður fjallað um mikilvægi uppbyggjandi vinnustaðamenningar og leitast við að skapa meðvitund um það hvernig hvert og eitt getur haft áhrif á þróun hennar.

Á námskeiðinu er fjallað um:

  • Hvað er vinnustaðamenning?
  • Hvað einkennir góða vinnustaðamenningu?
  • Hvað getur hver og einn starfsmaður gert til að efla vinnustaðamenningu?
  • Hvað segja rannsóknir um vinnustaðamenningu?
Efnistök

Að þekkja og vera meðvituð um mikilvægi vinnustaðamenningar
Að bæta frammistöðu fyrirtækis/stofnunar
Að auka starfsánægju
Að bæta stjórnun

Hæfniviðmið

Að þekkja og vera meðvituð um mikilvægi vinnustaðamenningar
Að bæta frammistöðu fyrirtækis/stofnunar
Að auka starfsánægju
Að bæta stjórnun

Fyrirkomulag
Æfingar, dæmi og umræður
Gott að vita

Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar verða afskráð en geta skráð sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en þátttakandi hefur fengið staðfestingarpóst frá Endurmenntun HÍ.

Samstarfsaðili
Endurmenntun Háskóla Íslands
Tengiliðir námskeiðs
  • Soffía G. Santacroce
Námsform
Staðnám
Tími
  • 18. nóvember 2025 klukkan 09:00-12:30

Lengd
3,5 klst
Mat
Mæting og þátttaka
Staðsetning
Starfsmennt Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Námskeiðið er fyrir stjórnendur og öll sem vilja hafa jákvæð áhrif á vinnustaðamenninguna á sínum vinnustað

Dagskrá

DagsetningDagskráTímiKennari
18.11.2025Jákvæð vinnustaðamenning skiptir máli!09:00Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir og Hildur Halldórsdóttir