Á þessu námskeiði er farið ítarlega yfir alla helstu virkni Microsoft Teams sem almennir notendur þurfa að þekkja.
Þú lærir að setja upp og aðlaga hópa, hvernig er hægt a haga samvinnu þar og á rásum.
Þú fræðist um innlegg og skilaboð, hvernig á að hlaða upp og finna skrár, deila þeim og sía.
Þú kynnist spjallinu og símtölum ásamt því hvernig á að stýra fjarfundum – deila skjá, tímasetja og skipuleggja fjarfundi og sýna glærur.
Hvernig á a setja upp og sækja viðburði í beinni útsendingu (s.s. Webinar) og hvernig þú getur virkjað vinsæl forrit og tengt þau við Teams.
Þú lærir á mismunandi Teams útgáfur fyrir borðtölvur, vefviðmót og snjalltæki ásamt ýmsum brögðum og brellum.
Vefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Á fyrsta degi veitir kennarinn þér aðgang að rafrænu netskólakerfi þar sem námsefnið (kennslumyndbönd, textapistlar, leiðbeiningar og verkefni) er aðgengilegt. Hann er þér innan handar í gegnum tölvupóst, vefspjall eða þjónustusíma.
Námskeiðið er opið í 12 mánuði eftir lokadag svo nemendur hafa nægan tíma til að rifja upp að vild.
Nánari upplýsingar um námskeiðið fást hjá kennara í síma 788 8805 milli kl. 10 – 20 virka daga eða í gegnum netfangið kennari(hjá)nemandi.is
Án kostnaðar fyrir aðildarfélaga og samstarfssjóði.