Aftur í námskeið

Publisher, upplýsingamiðlun

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Á þessu námskeiði lærir þú að búa til fjölbreytt kynningarefni á rafrænu formi eða prenti.

Á námskeiðinu er sérstaklega fjallað um uppsetningu efnis með Microsoft Publisher fyrir umbrot og stafrænar birtingar. Þú kynnist jafnframt öðrum vinsælum forritum sem notuð eru til efnismiðlunar s.s. Canva, ChatGPT, Adobe Firefly, Office Sway og Leonardo.

Efnistök

Að geta sett fram fjölbreytt kynningarefni á rafrænu formi eða prenti
Að geta notað ýmis forrit sem notuð eru til upplýsingamiðlunar

Hæfniviðmið

Að geta sett fram fjölbreytt kynningarefni á rafrænu formi eða prenti
Að geta notað ýmis forrit sem notuð eru til upplýsingamiðlunar

Fyrirkomulag

Vefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er.

Þegar skráningu þinni hefur verið breytt úr Nýr í Samþykkt þá getur þú hafið leikinn með því að hafa samband við kennara eða fylgja leiðbeiningum  á  mínar síður undir Kennslugögn.

Nemendur geta farið í gegnum námsefnið á sínum hraða, algengt er að nemendur fari yfir efnið á 3-5 vikum.

Kennari er þér innan handar í gegnum tölvupóst, með vefspjalli eða í þjónustusíma.

Aðgengi að námsefninu er opið í 12 mánuði eftir upphafsdag svo nemendur hafa nægan tíma til að rifja upp að vild. 

Upplýsingar og aðstoð: sími 7888805,  kennari@nemandi.is, milli 10-20 virka daga.

Samstarfsaðili

Tölvuskólinn Nemandi

Umsjón

Bjartmar Þór Hulduson, tölvukennari

Tengiliðir námskeiðs
  • Soffía G. Santacroce
Námsform

Á eigin hraða

Lengd

18 klst

Mat

Verkefnaskil

Verð

52.000 kr

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur

Námskeiðið er sérstaklega sniðið fyrir þau sem þurfa að búa til fjölbreytt kynningarefni á rafrænu formi eða prenti