Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Markmið námskeiðsins er að kynna sáttamiðlun sem aðferð til að leysa áreinings- og deilumál.
Farið verður yfir hugmyndafræði sáttamiðlunar og hvernig stjórnendur geta nýtt sér sáttamiðlun sem verkfæri til að grípa fyrr inn í þau vandamál sem upp koma og þannig jafnvel komið í veg fyrir stærri ágreiningsmál. Þátttakendur fá tækifæri til að spreyta sig á stuttri æfingu til að auka færni sína og dýpka þá þekkingu sem farið er yfir á námskeiðinu.
Umfjöllunarefni:
Að þekkja hugmyndafræði sáttamiðlunar og helstu undirstöðuatriði hennar
Að kunna hlutverk stjórnanda/sáttamiðlara í lausn ágreiningsmála
Að geta nýtt verkfæri sáttamiðlunar (t.d. spurninga- og samningatækni) í starfi
Að geta greint hvenær sáttamiðlun hentar og hvenær ekki
Að auka hæfni til að styðja við lasunamiðaða nálgun með sameiginlegri niðurstöðu

Fyrirlestur og umræður
Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga ekki rétt hjá samstarfssjóðum Starfsmenntar verða afskráð en geta skráð sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en þátttakandi hefur fengið staðfestingarpóst frá Endurmenntun HÍ
Endurmenntun Háskóla Íslands
Staðnám
4 klst
Mæting
Starfsmennt Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða
Fyrir stjórnendur og aðra sem vilja getað notað sáttamiðlun með beinum eða óbeinum hætti í sínu starfi
Dagsetning | Dagskrá | Tími | Kennari |
|---|---|---|---|
25.03.2026 | Sáttamiðlun fyrir stjórnendur | 12:30 | Lilja Bjarnadóttir |