Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Á námskeiðinu lærir þú að bæta skipulag og samskipti, einfalda tímastjórnun og verkefnastýringu ásamt því hvernig þú getur haldið betur utan um tengiliði og viðskiptavini.
Þú lærir að halda dagbók, bóka fundi, sinna tímastjórnun og almenna skjalastjórnun.
Þú lærir að geyma og flokka upplýsingar um tengiliði og viðskiptavini og halda utan um samskipti.
Þú færð verkfæri til þess að auðvelda eftirlit með eigin verkefnum sem og þeim sem eru úthlutuð öðrum.
Þú lærir að skrifa minnismiða, geyma þá og flokka, setja upp ferilskrá og skipulag ásamt því að senda, taka á móti og vinna með tölvupóst.
Vefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Á fyrsta degi veitir kennarinn þér aðgang að rafrænu netskólakerfi þar sem námsefnið (kennslumyndbönd, textapistlar, leiðbeiningar og verkefni) er aðgengilegt. Hann er þér innan handar í gegnum tölvupóst, vefspjall eða þjónustusíma.
Námskeiðið er sett fram sem 3 vikna kúrs (18. klst.) Námskeiðið er þar að auki opið í 12 mánuði eftir lokadag svo nemendur hafa nægan tíma til að rifja upp að vild.
Nánari upplýsingar um námskeiðið fást hjá kennara í síma 788 8805 milli kl. 10 – 20 virka daga eða í gegnum netfangið kennari(hjá)nemandi.is
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða