Aftur í námskeið

Menningarnæmi í heilbrigðisþjónustu

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Námskeiðinu er ætlað að veita nemendum skilning á helstu hugtökum í menningarnæmri heilbrigðisþjónustu og færni til að beita þeirri þekkingu á vettvangi. Farið verður í hugtök sem tengjast forréttindum, stétt, stofnanatengdu ofbeldi, jaðarsetningu af ýmsum toga og hnattvæðingu.

Á námskeiðinu er rýnt í hinar ýmsu kenningar um menningarnæmi í heilbrigðisþjónustu og áhrif jaðarsetningar á heilsu fólks. Skoðað er hvaða hópar eru jaðarsettir í samfélaginu og rannsóknir sem sýna hvernig sú jaðarsetning hefur áhrif á þá heilbrigðisþjónustu sem hóparnir geta sótt sér. Farið er yfir hvernig best er að mæta jaðarsettum hópum og veita þeim menningarnæma heilbrigðisþjónustu og sérstaklega rýnt í heilbrigðisþjónustu við tvo jaðarsetta hópa; annars vegar hinsegin fólk og hins vegar fólk af erlendum uppruna, s.s. umsækjendur um alþjóðlega vernd. Að lokum er fjallað um í hverju það felst að vera málsvari jaðarsettra hópa í heilbrigðiskerfinu og hvernig er hægt að gera það án forræðishyggju.

Á námskeiðinu er fjallað um

  • Jaðarsetningu, margþætta jaðarsetningu og heilbrigðisþjónustu.
  • Menningarnæma heilbrigðisþjónustu.
  • Hinsegin heilbrigðisþjónustu.
  • Heilbrigðisþjónustu umsækjenda um alþjóðlega vernd.
Efnistök

Að auka skilning á því hvernig menning, stétt og staða móta viðhorf fólks til heilbrigðis, veikinda og heilbrigðisþjónustu.
Að auka innsýn inn í reynsluheim hinna ýmsu jaðarsettu hópa í heilbrigðiskerfinu.
Að þekkja hlutverk sitt sem málsvara jaðarsettra hópa.

Hæfniviðmið

Að auka skilning á því hvernig menning, stétt og staða móta viðhorf fólks til heilbrigðis, veikinda og heilbrigðisþjónustu.
Að auka innsýn inn í reynsluheim hinna ýmsu jaðarsettu hópa í heilbrigðiskerfinu.
Að þekkja hlutverk sitt sem málsvara jaðarsettra hópa.

Fyrirkomulag

Fyrirlestrar og umræður.

Gott að vita

Eingöngu félagsfólk aðildarfélaga Starfsmenntar getur skráð sig hér á námskeiðið. Félagsfólk BHM með aðild að Starfsþróunarsetri háskólamanna sem hyggst skrá sig á þetta námskeið verður að hafa samband við Starfsmennt. Aðrir skrá sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Sæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en Starfsmennt hefur breytt stöðu skráningar úr ,,nýr” í ,,samþykkt.” Póstur verður sendur á þátttakendur þess efnis áður en námskeiðið hefst.

Samstarfsaðili
Endurmenntun Háskóla Íslands
Tengiliðir námskeiðs
  • Soffía G. Santacroce
Námsform
Staðnám
Tími
  • 15. október 2024 klukkan 17:00-20:00
  • 17. október 2024 klukkan 17:00-20:00
  • 24. október 2024 klukkan 17:00-20:00
  • 22. október 2024 klukkan 17:00-20:00

Lengd
12 klst (3x4)
Mat
Mæting og þátttaka
Staðsetning
Starfsmennt Skipholt 50b, 105 Reykjavík
Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Fyrir heilbrigðisstarfsfólk sem vill efla menningarlega hæfni sína og fá innsýn inn í reynsluheim jaðarsettra hópa.

Dagskrá

DagsetningDagskráTímiKennari
15.10.2024Menningarnæmi í heilbrigðisþjónustu - jaðarsettir hópar og aðgengi þeirra að heilbrigðisþjónustu á Íslandi17:00Anna Kristín B. Jóhannesdóttir, Sigurður Ýmir Sigurjónsson, Ansgar Bruno Jones