Aftur í námskeið

Dómstólasýslan | Tölvuleikni og Windows stýrikerfið

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Á þessu námskeiði eflir þú almenna tölvuleikni þína og kynnist Windows stýrikerfinu betur.

Þú leysir verkefni, lærir að skilja hlutverk myndræns notendaviðmóts og hvernig gluggar eru meðhöndlaðir ásamt því hvernig er best að sníða kerfið að þér og þínum þörfum.

Þú kynnist skráarvinnslu, hvernig er unnið með möppur, að breyta nafni á möppum og skrám, hvernig þeim er raðað o.s.frv. Þú vinnur með einföld forrit og býrð til skrár, vistar þær og færir milli mappa, eyðir þeim og endurheimtir þær. Þú lærir að nota stjórnborðið til að móta notendaviðmótið að þínum þörfum og kynnist ýmsum algengum hjálparforritum.

Efnistök
Að geta nýtt almenna tölvuleikni og unnið með Windows stýrikerfi
Hæfniviðmið
Að geta nýtt almenna tölvuleikni og unnið með Windows stýrikerfi
Fyrirkomulag

Vefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Á fyrsta degi veitir kennarinn þér aðgang að rafrænu netskólakerfi þar sem námsefnið (kennslumyndbönd, textapistlar, leiðbeiningar og verkefni) er aðgengilegt. Hann er þér innan handar í gegnum tölvupóst, vefspjall eða þjónustusíma.

Námskeiðið er sett fram sem 3 vikna kúrs (18. klst.) Námskeiðið er þar að auki opið í 12 mánuði eftir lokadag svo nemendur hafa nægan tíma til að rifja upp að vild.

Nánari upplýsingar um námskeiðið fást hjá kennara í síma 788 8805 milli kl. 10 – 20 virka daga eða í gegnum netfangið kennari(hjá)nemandi.is

Samstarfsaðili
Tölvuskólinn Nemandi
Umsjón
Bjartmar Þór Hulduson
Tengiliðir námskeiðs
  • Soffía G. Santacroce
Námsform
Á eigin hraða
Lengd
12 klst
Mat
Verkefnaskil
Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Starfsfólk dómstólanna