Aftur í námskeið

Dómstólasýslan | Excel I

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Á þessu námskeiði lærir þú grunninn í Excel.

Þú kynnist grunnverkfærum Excel og notendaviðmótum þess.

Ferð yfir grunninn í uppsetningu formúla, t.d. summu, frádrátt, margföldun og deilingu.

Þú lærir að stilla vísanir í reiti og skjöl ásamt útlitsmótun gagna.

Þú lærir að móta texta, töflur og myndrit í Excel, uppsetningu á haus og fæti og hvernig er best að prenta skjöl.

Efnistök
Að öðlast grunnfærni í Excel töflureikni
Hæfniviðmið
Að öðlast grunnfærni í Excel töflureikni
Fyrirkomulag

Vefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Á fyrsta degi veitir kennarinn þér aðgang að rafrænu netskólakerfi þar sem námsefnið (kennslumyndbönd, textapistlar, leiðbeiningar og verkefni) er aðgengilegt. Hann er þér innan handar í gegnum tölvupóst, vefspjall eða þjónustusíma.

Námskeiðið er sett fram sem 3 vikna kúrs (18. klst.) Námskeiðið er þar að auki opið í 12 mánuði eftir lokadag svo nemendur hafa nægan tíma til að rifja upp að vild.

Nánari upplýsingar um námskeiðið fást hjá kennara í síma 788 8805 milli kl. 10 – 20 virka daga eða í gegnum netfangið kennari(hjá)nemandi.is

Gott að vita
 
Samstarfsaðili
Tölvuskólinn Nemandi
Umsjón
Bjartmar Þór Hulduson, tölvukennari
Tengiliðir námskeiðs
  • Soffía G. Santacroce
Námsform
Á eigin hraða
Lengd
18 klst
Mat
Verkefnaskil
Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur
Starfsfólk dómstólanna