Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Canva er öflugt og einstaklega notendavænt verkfæri með ókeypis aðgangi þar sem þú getur búið til grípandi margmiðlunarefni.
Með Canva getur þú t.d. búið til kynningar (slides), efni fyrir samfélagsmiðla, textaskjöl með myndefni (t.d. skýrslur og ferilskrár), bæklinga, lógó, plaggöt, myndbönd og einfaldar vefsíður á þægilegan hátt án þess að þurfa neina reynslu af hönnun.
Canva býður upp á mikið safn af tilbúnum sniðmátum sem þú lærir að aðlaga að þínum þörfum.
Námskeiðið fer í gegnum helstu möguleika Canva og veitir þér hagnýta færni í að nýta þetta öfluga tól.
Vefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Á fyrsta degi veitir kennarinn þér aðgang að rafrænu netskólakerfi þar sem námsefnið er aðgengilegt. Hann er þér innan handar í gegnum tölvupóst, vefspjall eða þjónustusíma.
Nánari upplýsingar um námskeiðið fást hjá kennara í síma 788 8805 milli kl. 10 – 20 virka daga eða í gegnum netfangið kennari(hjá)nemandi.is
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða