Laun og vinnutími
Fjallað er um megingrundvöll launaútreikninga, þ.e. vinnutíma starfsmanna. Farið yfir lykilatriði í því efni, s.s. vinnutímaskipulagið, dagvinnutímabil, neysluhlé og starfshlutfall, sem og tengd atriði eins og yfirvinnu, álagsgreiðslur og sérstaka frídaga. Áhersla er lögð á hefðbundna dagvinnu á mánaðarlaunum.
Helstu efnisþættir námskeiðsins eru:
- Gagnkvæmar skyldur aðila (laun í stað vinnuframlags)
- Vinnutímaskipulag (dagvinna, vaktavinna, annað)
- Starfshlutfall
- Daglegur vinnutími og/eða mánaðarleg vinnuskylda (lykiltölur)
- Dagvinnutímabil skv. kjarasamningi
- Betri vinnutími (stytting vinnuvikunnar og matar- og neysluhlé)
- Yfirvinna og álagsgreiðslur
- Útköll og eyðuákvæði
- Sérstakir frídagar
- Launasetning - Reykjavíkurborg og ríkið (starfsmat og stofnanasamningar)
- Fæðisfé
- Persónuuppbætur
- Ráðningarform/uppsagnarfrestur
- Veikindaréttur (laun í veikindum)
- Orlof og fyrning orlofs
Hæfniviðmið
Að kunna skil á helstu reglum um vinnutíma, skipulag hans og önnur atriði sem ráða því hvaða forsendur eru lagðar til grundvallar launaútreikningum.
Að auka færni til að vinna með vinnutímaforsendur dagvinnufólks.
Fyrirkomulag
Fyrirlestur og umræðurHelstu upplýsingar
- Tími4. mars 2024 kl. 9 - 12 og 6. mars frá kl. 9 - 11. Skráning þarf að berast tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst.
- Lengd5 klst.
- UmsjónJenný Þórunn Stefánsdóttir, lögfræðingur hjá Sameyki
- StaðsetningNámskeiðið fer fram á Microsoft Teams.
- TegundStreymi
- Verð30.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurÖll sem koma að starfsmanna- og kjaramálum.
- Gott að vita
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
- MatMæting.
- Tengiliður námskeiðsBjörg Valsdóttir
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
04.03.2024 | Laun og vinnutími | 09:00 | 12:00 | Jenný Þórunn Stefánsdóttir |
06.03.2024 | Laun og vinnutími | 09:00 | 11:00 | Jenný Þórunn Stefánsdóttir |