Viðeigandi aðlögun á vinnustað – fatlað fólk á vinnumarkaði

Með samningi SÞ um réttindi fatlaðs fólks hafa tækifæri þeirra og fólks með skerta starfsgetu aukist á vinnumarkaði. Viðeigandi aðlögun er þó algjör forsenda þess að fatlað fólk og/eða fólk með skerta starfsgetu eigi raunhæfan möguleika á að njóta jafnréttis og jafnra tækifæra.

Í ráðningu fatlaðs fólks en í lögum um jafna meðferð á vinnumarkaði nr86/2019 er kveðið á um viðeigandi aðlögun en í 10. gr laganna segir:

Atvinnurekandi skal gera viðeigandi ráðstafanir, sé þeirra þörf í sérstöku tilviki, til að gera fötluðum einstaklingi eða einstaklingi með skerta starfsgetu kleift að eiga aðgengi að og taka þátt í starfi, njóta framgangs í starfi eða fá þjálfun, enda séu þær ráðstafanir ekki of íþyngjandi fyrir atvinnurekandann.

Í fræðsluerindinu er leitast við að undirbúa starfsstaði til þess að taka á móti fötluðum einstaklingum til starfa og stuðla þannig að inngildandi vinnumarkaði þar sem þátttaka allra er metin að verðleikum og tækifærin gefin.
Sérstaklega er fjallað um eftirfarandi þætti; hvað felst í viðeigandi aðlögun, hvaða þýðingu hún hefur bæði fyrir fatlaða einstaklinga, samstarfsfólk og vinnustaðamenningu.

Hæfniviðmið

Að auka skilning á því hvað viðeigandi aðlögun þýðir fyrir samstarfsfólk

Að auka þekkingu á því hvernig viðeigandi aðlögun er beitt á vinnustað

Að þekkja til þeirra laga sem viðeigandi aðlögun á vinnustað byggir á

Að auka færni til þess að vinna á vinnustað þar sem fjölbreytileiki mannauðs fær að skína.

Fyrirkomulag

Fræðsluerindi, fyrirspurnir og umræður

Helstu upplýsingar

  • Tími
    23. apríl 2024, kl. 14.00-15.00. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst.
  • Lengd
    1 klst.
  • Umsjón
    Sara Dögg Svanhildardóttir, sérfræðingur hjá Vinnumálastofnun
  • Staðsetning
    Vefnám á rauntíma, kennt á Teams
  • Tegund
    Vefnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Öll sem vilja auka færni til þess að vinna á fjölbreyttum vinnustað
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Þátttaka
  • Tengiliður námskeiðs
    Guðrún Arna Gylfadóttir

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
23.04.2024Viðeigandi aðlögun á vinnustað – fatlað fólk á vinnumarkaði14:0015:00Sara Dögg Svanhildardóttir