Menningarlæsi - Samskipti við erlenda gesti

Á námskeiðinu er fjallað um ýmis atriði sem gott er að hafa í huga þegar tekið er á móti erlendum gestum.

Það skal ítrekað að á námskeiðinu eru dregin fram atriði sem geta einkennt þjóðir til að hægt sé að undirbúa komu þeirra af kostgæfni. Augljóslega er þó alls ekki hægt að alhæfa um fólk af einstöku þjóðerni. Allar þjóðir hafa sín sérkenni en einstaklingar eru ekki steyptir í sama mót.

Hæfniviðmið

Að þekkja hvað felst í gæðaþjónustu og tengja það við mismunandi menningarheima.

Að efla hæfni til að fást við óánægða viðskiptavini.

Að auka skilning á mismunandi menningu og siðum annarra þjóða.

Að efla færni, þekkingu og öryggi starfsmanna í starfi.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og verkefnavinna.

Námskeiðið er opið í fjórar vikur.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    8. maí 2024. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst.
  • Lengd
    10 klst.
  • Umsjón
    Margrét Reynisdóttir, M.Sc. í stjórnun og stefnumótun og M.Sc. í alþjóða markaðsfræði.
  • Staðsetning
    Vefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum
  • Tegund
    Vefnám
  • Verð
    18.500 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Fyrir þá sem vilja bæta sig í samskiptum við erlenda gesti.
  • Gott að vita
     
  • Mat
    Verkefnaskil
  • Tengiliður námskeiðs
    Björg Valsdóttir

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
08.05.2024Þjóðerni og þjónusta - Góð ráð í samskiptum við erlenda gesti00:0000:00Margrét Reynisdóttir