Vefsíðugerð í Wix

Á þessu námskeiði lærir þú að nota Wix til þess að búa til vefsíðu frá grunni. Forritið er afar öflugt og skemmtilegt og gerir almennum notendum mögulegt að hanna og vinna vefsíðu án tæknilegrar þekkingar.

Þú kynnist notendaviðmóti Wix, helstu hugtök vefgerðar, hvernig þú tengir lén og tölvupóst við síðuna þína. Þú lærir að búa til vef, að setja inn myndir og myndbönd, myndasöfn og féttasíðu, hvernig á a setja inn skráningarform, safna upplýsingum og setja upp póstlistakerfi. Þá kynnistu grunnhandtökunum við leitarvélabestun.

Hæfniviðmið

Að geta búið til vefsíðu með Wix vefkerfinu.

Fyrirkomulag

Vefnámskeið sem er opið í 3 vikur og hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Á fyrsta degi veitir kennarinn þér aðgang að rafrænu netskólakerfi þar sem námsefnið er aðgengilegt. Hann er þér innan handar í gegnum tölvupóst, vefspjall eða þjónustusíma.

Nánari upplýsingar um námskeiðið fást hjá kennara í síma 788 8805 milli kl. 10 – 20 virka daga eða í gegnum netfangið kennari(hjá)nemandi.is

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Skráning er opin til 28. mai 2024 en upphafið er valfrjálst.
  • Lengd
    18 klst.
  • Umsjón
    Bjartmar Þór Hulduson, tölvukennari.
  • Staðsetning
    Vefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum
  • Tegund
    Vefnám
  • Verð
    39.500 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Námið hentar öllum sem vilja læra að gera vefsíður frá grunni.
  • Gott að vita
  • Mat
    Verkefnaskil
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
28.05.2024Vefsíðugerð - Wix23:5923:59Bjartmar Þór Hulduson, tölvukennari.