Vellíðan starfsfólks

Vaxandi meðvitund er á vinnustöðum samtímans um mikilvægi þess að huga að vellíðan starfsfólks.

Á námskeiðinu verður fjallað um, frá sjónarhóli starfsfólks og vinnustaða, hvað felst í vellíðan starfsfólks. Skoðaðir verða helstu þættir sem þarf að huga að til að starfsfólki líði vel í starfi með sérstaka áherslu á jafnvægi og samþættingu vinnu og einkalífs og sveigjanleika í starfi, mikilvægi félagslegra tengsla á vinnustöðum og hlutverk leiðtoga á vinnustöðum. Rýnt verður í af hverju það skiptir máli að huga að vellíðan á vinnustöðum og ábyrgð stjórnenda og starfsfólks í því samhengi.

Leitað verður svara við spurningum á borð við: Hvað er vellíðan í starfi, hvernig stuðlum við að vellíðan og hvað getur starfsfólkið sjálft gert til að vinna að eigin vellíðan? Hvað þurfa stjórnendur að vera meðvitaðir um og hvaða áhrif hafa vinnustaðir á líðan starfsfólks?

Hæfniviðmið

Að þekkja helstu þætti sem stuðla að vellíðan í vinnu.

Að þekkja leiðir til að vinna að eigin vellíðan í vinnu og/eða samstarfsfólks.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur, umræður

Helstu upplýsingar

  • Tími
    18. apríl 2023, kl. 13.00 - 16.00. Skráningu lýkur 8. apríl kl.10.00
  • Lengd
    3 klst.
  • Umsjón
    Þóra Þorgeirsdóttir, doktor í mannauðsstjórnun
  • Staðsetning
    Vefnám í rauntíma, kennt á Zoom
  • Tegund
    Streymi
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Öll sem hafa áhuga á líðan á vinnustöðum, bæði stjórnendur og leiðtoga sem eru með mannaforráð og þau sem vilja huga að eigin vellíðan.
  • Gott að vita
    Eingöngu félagsfólk aðildarfélaga Starfsmenntar getur skráð sig hér á námskeiðið. Félagsfólk BHM með aðild að Starfsþróunarsetri háskólamanna sem hyggst skrá sig á þetta námskeið verður að hafa samband við Starfsmennt. Aðrir skrá sig hjá Endurmenntun Háskóla ÍslandsSæti á námskeiðið telst ekki 100% öruggt fyrr en Starfsmennt hefur breytt stöðu skráningar úr ,,nýr” í ,,samþykkt.” Póstur verður sendur á þátttakendur þess efnis áður en námskeiðið hefst. 
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting og þátttaka
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
18.04.2024Vellíðan starfsfólks13:0016:00Þóra Þorgeirsdóttir