Af hverju eiga sum rétt á þjónustu án kostnaðar?
Starfsfólk ríkisstofnana
Ef þú starfar hjá ríkisstofnun og ert í einhverju af þessum stéttarfélögum þá geturðu nýtt þér þjónustuna á grundvelli kjarasamninga.
- Félag flugmálastarfsmanna ríkisins
- Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi
- FOSS, stéttarfélag í almannaþjónustu
- Félag starfsmanna stjórnarráðsins
- Kjölur - stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu
- Sameyki - stéttarfélag í almannaþjónustu
- Starfsmannafélag Garðabæjar
- Starfsmannafélag Hafnarfjarðar
- Starfsmannafélag Húsavíkur
- Starfsmannafélag Kópavogs
- Starfsmannafélag Suðurnesja
- Starfsmannafélag Vestmannaeyja
Ef þú starfar hjá ríkisstofnun og átt rétt hjá Ríkismennt eða Starfsþróunarsetri BHM (sjá leiðbeiningar fyrir BHM hér neðar) þá geturðu nýtt þér þjónustuna á grundvelli samstarfssamninga.
Ef þú ert í fæðingarorlofi eða færð greiddar atvinnuleysisbætur en varst seinast í starfi hjá ríkinu og greiddir félagsgjöld til Sameykis þá geturðu nýtt þér þjónustu Starfsmenntar þér að kostnaðarlausu.
Fyrir þau sem eru með aðild hjá Ríkismennt:
Við skráningu þurfa þau sem tilheyra Ríkismennt að fylgja þessum skrefum:
- Velja undir Stéttarfélag: Annað gefðu upp hér fyrir neðan
- Í reitinn Hvert er stéttarfélagið? - á að skrá það aðildarfélag Ríkismenntar sem viðkomandi tilheyrir. ATH! Ekki nægir að skrá ASÍ sem stéttarfélag heldur verður að skrá nafn aðildarfélagsins.
- Undir greiðsluupplýsingar á að haka í Ég vil fá sendan greiðsluseðil og setja kennitölu Ríkismenntar sem greiðanda, kennitalan er 5205051560.
Starfsfólk sjálfseignarstofnana
Ef þú starfar hjá sjálfseignarstofnun sem hefur samið við Sameyki um að greiða til Starfsmenntar þá geturðu nýtt þér þjónustuna á grundvelli kjarasamnings.
Ef þú starfar hjá sjálfseignarstofnun og átt rétt hjá Starfsþróunarsetri BHM (sjá leiðbeiningar fyrir BHM hér neðar) þá geturðu nýtt þér þjónustuna á grundvelli samstarfssamnings.
Starfsfólk Reykjavíkurborgar
Ef þú starfar hjá Reykjavíkurborg og átt rétt hjá Fræðslusjóði Sameykis eða Starfsþróunarsetri BHM (sjá leiðbeiningar fyrir BHM hér neðar) þá geturðu nýtt þér þjónustuna á grundvelli samstarfssamninga.
Samið hefur verið um fullan aðgang að námi og fræðslu á vettvangi Starfsmenntar fyrir starfsfólk Reykjavíkurborgar, sem jafnframt á rétt hjá Fræðslusjóði Sameykis. Greiðslurnar skerða ekki einstaklingsrétt félagsfólks.
Við skráningu þurfa þau sem eiga rétt hjá Fræðslusjóði Sameykis að fylgja þessum skrefum. Aðrir fylgi leiðbeiningum fyrir félagsfólk BHM með aðild að Starfsþróunarsetrinu:
- Velja undir Stéttarfélag: Annað gefðu upp hér fyrir neðan
- Í reitinn Hvert er stéttarfélagið?- á að skrá Sameyki.
- Undir greiðsluupplýsingar á að haka í Ég vil fá sendan greiðsluseðil og setja kennitölu Fræðslusjóðs Sameykis sem greiðanda, kennitalan er 6710982189.
Starfsfólk sveitarfélaga
Fyrir þau sem eru með aðild hjá Sveitamennt:
Við skráningu þurfa þau sem tilheyra Sveitamennt að fylgja þessum skrefum:
- Velja undir Stéttarfélag: Annað gefðu upp hér fyrir neðan
- Í reitinn Hvert er stéttarfélagið? - á að skrá það aðildarfélag Sveitamenntar sem viðkomandi tilheyrir. ATH! Ekki nægir að skrá ASÍ sem stéttarfélag heldur verður að skrá nafn aðildarfélagsins.
- Undir greiðsluupplýsingar á að haka í Ég vil fá sendan greiðsluseðil og setja kennitölu Sveitamenntar sem greiðanda, kennitalan er 6012060130.
Félagsfólk BHM með aðild að Starfsþróunarsetrinu
Samið hefur verið um fullan aðgang að námi og fræðslu á vettvangi Starfsmenntar fyrir starfsfólk ríkis, sveitarfélaga og sjálfseignarstofnana, sem jafnframt á rétt hjá Starfsþróunarsetri BHM. Greiðslurnar skerða ekki einstaklingsrétt félagsfólks.
Við skráningu þurfa þau sem falla hér undir að fylgja þessum skrefum:
- Velja undir Stéttarfélag: Annað gefðu upp hér fyrir neðan
- Í reitinn Hvert er stéttarfélagið? - á að skrá það aðildarfélag BHM sem viðkomandi tilheyrir. ATH! Ekki nægir að skrá BHM sem stéttarfélag heldur verður að skrá nafn aðildarfélagsins (sjá listann hér fyrir neðan).
- Undir greiðsluupplýsingar á að haka í Ég vil fá sendan greiðsluseðil og setja kennitölu Starfsþróunarseturs sem greiðanda, kennitalan er 5006110730.
Aðildarfélögin eru:
- Dýralæknafélag Íslands
- Félag geislafræðinga
- Félag háskólamenntaðra starfsmanna Stjórnarráðsins
- Félag íslenskra listamanna í sviðslistum og kvikmyndum
- Félag íslenskra náttúrufræðinga
- Félag leikstjóra á Íslandi
- Félag lífeindafræðinga
- Félag sjúkraþjálfara
- Félagsráðgjafafélag Íslands
- Iðjuþjálfafélag Íslands
- Kjarafélag viðskipta- og hagfræðinga
- Ljósmæðrafélag Íslands
- Prestafélag Íslands
- Sálfræðingafélag Íslands
- Stéttarfélag lögfræðinga
- Viska (áður Fræðagarður, Stéttarfélag bókasafns- og upplýsingafræðinga og Félag íslenskra félagsvísindamanna)
- Þroskaþjálfafélag Íslands