Þjónusta við stofnanir
Starfsmennt var stofnuð til að styðja við starfsþróun og hæfniuppbyggingu í opinberum störfum. Liður í því er að aðstoða mannauðsfólk og stjórnendur við að koma fræðslumálum í góðan farveg.
Það getur verið svolítill frumskógur að skilja hver á rétt á þjónustu hjá Starfsmennt og í hverju þjónustan er fólgin. Heyrðu þess vegna í okkur til að fá réttar upplýsingar og kannski getum við teiknað upp samstarf saman.
Dæmi um verkefni sem Starfsmennt getur aðstoðað við:
- Greina fræðsluþarfir
- Benda á ýmsar leiðir til að mæta fræðsluþörfum
- Stinga upp á leiðum til að byggja upp og viðhalda góðri fræðslumenningu
- Aðstoð við að halda utan um og kosta skipulagða fræðslu
- Aðstoð við að skipuleggja starfsdaga
- Aðstoð við að rýna í niðurstöður úr Stofnun ársins
Stofnananám
Starfsmennt býður stofnunum jafnframt sérsniðin námskeið í samræmi við fræðsluþörf, stefnu og framtíðarsýn.
Hver stofnun fær sitt svæði þar sem finna má lista yfir slík námskeið en einnig námskeið sem stofnunin hefur óskað eftir að vekja sérstaka athygli á meðal síns starfsfólks.
Félagsfólk aðildarfélaga Starfsmenntar og samstarfssjóða greiðir ekki fyrir þátttöku í námskeiðunum. Sjá nánari umfjöllun um hver á rétt á þjónustu og greiðsluþátttöku.
Hafðu samband og fáðu að heyra meira um stofnananám.