Fræðsluviðburðir Starfsmenntar eru hugsaðir sem hugmyndir eða kveikjur að fræðslu fyrir starfsfólk og stjórnendur hjá hinu opinbera. Þeir eru byggðir í kringum ákveðin þemu og hægt er að sérsníða fræðsluna fyrir hverja stofnun og aðlaga eins og hentar.
Þemun er einnig hægt að nýta sem hugmyndir fyrir starfsdaga (heila eða hálfa) eða sem stök erindi sem geta verið allt frá einni klst eða lengri. Athugið að þetta er ekki tæmandi listi svo hafðu samband til að heyra meira.
Fyrirlestra og námskeið er hægt að halda hjá stofnuninni sjálfri eða í kennslustofu Starfsmenntar í Skipholti 50b, Reykjavík.
Hafðu samband og fáðu að heyra um fræðsluviðburði fyrir þína stofnun!
Stafræn hæfni og notkun gervigreindar
Markmið og lýsing
Að efla stafræna hæfni þátttakenda, auka skilvirkni og tryggja örugga og markvissa nýtingu helstu verkfæra Microsoft 365 og gervigreindar (Copilot).
Í þessu þema er áhersla á nýtingu gervigreindar og sjálfvirkni til að einfalda verkefni, bæta ákvarðanatöku og spara tíma. Þátttakendur fá innsýn í hvernig hægt er að auka öryggi gagna, halda utan um samskipti í Outlook og samhæfa vinnu með Teams, OneDrive og SharePoint.
Aukin skilvirkni og einföldun ferla getur þannig stytt þann tíma sem fer í rútínubundin verkefni og skapað rými fyrir önnur eða ný verkefni.
Ávinningur
- Aukin öryggisvitund og færni í meðhöndlun upplýsinga
- Betri nýting á verkfærum Microsoft 365
- Meiri yfirsýn og stjórn í daglegu starfi
- Tímasparnaður með snjallari vinnubrögðum
Dæmi um fræðsluviðburði
- Gervigreind og sjálfvirkni
- Netöryggi
- Náðu stjórn með Outlook
- Teams & OneDrive
- SharePoint
- Copilot - yfirlitsnámskeið
Samskipti, þjónusta og inngilding
Markmið og lýsing
Að styrkja þjónustumenningu, efla samskiptafærni og auka meðvitund um fordómaleysi, inngildingu og áhrif starfsfólks á upplifun notenda.
Í þessu þema er fjallað um hvernig góð samskipti geta stutt við góða þjónustu og stuðlað að jákvæðri og inngildandi vinnustaðamenningu. Þátttakendur fá verkfæri til að veita þjónustu af virðingu og innsæi og takast á við krefjandi aðstæður – hvort sem er í tölvupósti, síma eða augliti til auglitis.
Ávinningur
- Betri samvinna og þjónusta byggð á trausti og virðingu
- Skýrari og faglegri samskipti við ólíka hópa
- Færni til að takast á við erfiðar aðstæður af öryggi
- Aukin meðvitund um fordóma og áhrif menningar
Dæmi um fræðsluviðburði
- Góð þjónusta – hvernig veitum við hana
- Samskipti í tölvu og síma
- Krefjandi samskipti
- Fagmennska og virðing í þjónustu
- Vinnustaðamenning sem styður góða þjónustu
Seigla, tímastjórn og starfsánægja
Markmið og lýsing
Að efla innri styrk, bæta daglegt vinnuflæði, auka starfsánægju og stuðla að heilbrigðu jafnvægi í starfi og líðan.
Breytingar, álag, áreiti og endalaus verkefni – hljómar þetta kunnuglega? Við ráðum ekki alltaf þeim verkefnum sem þarf að sinna né aðstæðum sem upp koma - en við ráðum hvernig við tökumst á við þau og hvað við tökum út úr þeim. Þetta þema er til þess fallið að styðja við andlega seiglu, streitustjórnun og vellíðan í starfi. Þátttakendur kynnast hagnýtum leiðum til að efla jákvætt hugarfar, auka starfsánægju og ná betri tökum á tíma og skipulagi.
Ávinningur
- Aukin seigla og jákvæðni í erfiðum aðstæðum
- Betri stjórn á verkefnum og tíma
- Meiri starfsánægja og minni streita
- Minna álag og aukin yfirsýn
Dæmi um fræðsluviðburði
- Seigla, streitustjórnun og starfsánægja á tímum breytinga
- Jákvæðni og vellíðan vinnu
- Betri tímastjórnun og skipulag
- Tímastjórn með Outlook
Teymisvinna og stjórnunarhæfni
Markmið og lýsing
Að efla hæfni stjórnenda með áherslu á samskipti, vellíðan, fagmennsku og árangursdrifna samvinnu í teymum.
Árangursrík teymisvinna og jákvæður starfsandi byggja á styrkri forystu og öflugum samskiptum. Þetta þema snýr að því að styðja við að byggja upp traust, takast á við erfið samtöl, greina streitueinkenni og skapa sálfélagslegt öryggi. Þátttakendur fá hér verkfæri til að efla teymin sín og takast á við breytingar og streitu í vinnuumhverfinu.
Ávinningur
- Aukið öryggi í að takast á við erfið samtöl
- Betri greining á og viðbrögð við streitu og spennu
- Sterkari starfsandi og traust innan hópa
- Öflugri stjórnendur og samstilltari teymi
Dæmi um fræðsluviðburði
- Leiðtogahæfni
- Teymi til árangurs
- Stjórnun og starfsandi
- Að taka samtalið
- Streitustiginn og sálfélagslegt öryggi