Taktu skrefið og komdu í spjall!
Ingibjörg Hanna, náms- og starfsráðgjafi Starfsmenntar veitir þér persónulega og faglega ráðgjöf um tækifæri og möguleika í námi og starfi.
Saman getum þið:
- kannað hvar áhugasvið þitt liggur
- fundið leiðir til að nálgast þín markmið
- gert ferilskrá og kynningarbréf ef þú ert í atvinnuleit
- skoðað þína reynslu og hvort raunfærnimat er eitthvað fyrir þig
Samtalið er alltaf sniðið að þínum þörfum og getur farið fram í húsnæði Starfsmenntar en það er líka hægt að spjalla á Teams eða í síma.
Ráðgjöfin er án endurgjalds fyrir félagsfólk í aðildarfélögum BSRB og Starfsþróunarseturs háskólamanna.