Starfsmennt er og hefur verið í samstarfi við margar stofnanir frá upphafi. Hér eru nokkrar reynslusögur stjórnenda sem gefa innsýn í hvernig við getum unnið saman:

Ás styrktarfélag

,,Starfsmennt er bæði með faglega og persónulega þjónustu"

Við hjá Ási Styrktarfélagi heyrðum fyrst af þjónustu Starfsmenntar hjá Sameyki og höfðum í framhaldi samband við þau og upplifðum strax í byrjun mikinn samstarfsvilja og þá var ekki aftur snúið. Við hófum samstarfið með því að ráðgjafar Starfsmenntar stýrðu vinnufundi hjá okkur bæði með hóp af stjórnendum og svo hópi starfsmanna þar sem greind var fræðsluþörf eftir starfsheitum hjá Ási. Starfsmennt skilaði í framhaldi skýrslu sem var mikilvæg til þess að hægt væri að gera markvissa fræðsluáætlun fyrir félagið sem er í takti við fræðsluþörf. Skýrslan var mjög vel unnin og mikill metnaður lagður í að greiningin væri sem allra best.

Ástæða þess að við vildum hefja samstarfið var að okkur fannst vanta betra utanumhald varðandi skráningar á námskeið og eins að fá aðgang að sérhæfðum námskeiðshöldurum en þar eru á skrá mikill fjöldi af frábærum aðilum sem eru sérhæfðir á fjölbreyttum sviðum. Staðan hjá okkur núna er þannig að við erum með stofnanagátt hjá Starfsmennt þar sem við höfum yfirsýn yfir námskeiðin okkar og þátttöku starfsmanna á námskeiðum.

Þá höfum við einnig nýtt okkur að fá náms- og starfsráðgjafa að láni fyrir starfsfólkið sem hefur reynst vel og mikil ánægja hefur verið með þessa þjónustu. Það hefur reynst dýrmætt að náms- og starfsráðgjafinn hefur mætt á starfsstöðvarnar hjá okkur til að auka líkur á að starfsfólk geti nýtt sér tímana og skoðað starfsþróunar möguleika sína til dæmis með því að bæta við sig námi. Eins er mjög aðgengileg öll aðstoð hjá Starfsmennt og alltaf vilji til að koma til móts við okkar þarfir sem gerir samstarfið eins ánægjulegt og kostur er.

Ég myndi hiklaust mæla með samstarfi við Starfsmennt þar sem fagleg þekking, skjót viðbrögð við fyrirspurnum og sveigjanleiki einkenna þeirra starf.

Bryndís Theódórsdóttir, forstöðumaður mannauðsmála hjá Ási Styrktarfélagi (mars 2026)

Háskóli Íslands

„Áfram veginn“

Menntun felur í sér almennar breytingar á þekkingu, færni og leikni hvers og eins. Menntun er ein besta leiðin fram á við og aukin menntun er um leið ein árangursríkasta leiðin til að koma í veg fyrir fordóma, efla virðingu og umhyggju fyrir umhverfinu og því samfélagi sem við viljum búa í. Menntun er ekki bundin við stað og stund, hún varir að eilífu og það ætti að vera sameiginlegt verkefni, starfsfólks og vinnuveitenda, að eflast dag frá degi.

Háskóli Íslands er með stærri vinnustöðum landsins en þar vinnur mjög fjölbreyttur hópur starfsfólks, bæði þegar kemur að menntun og verkefnum. Það er gríðarlega mikilvægt fyrir Háskólann að bjóða upp á öfluga starfsþróun fyrir sitt starfsfólk. Undanfarin misseri hefur Háskólinn lagt sig fram um að efla tækifæri starfsfólks til starfsþróunar og í því ljósi var m.a. leitað til Starfsmenntunar.

Hjá Starfsmennt starfar einstaklega flottur hópur starfsfólks sem leggur sig allan fram um að aðstoða þá sem leita til þeirra. Ég hef leitað til starfsfólks Starfsmenntar varðandi gerð fræðsluáætlana fyrir afmarkaða starfshópa innan Háskola Íslands sem og uppsetningu námskeiða. Einnig hefur hluti starfsfólks Háskólans nýtt sér fræðslunet Starfsmenntar, þar sem finna má virkilega flott og metnaðarfullt úrval námskeiða.

Samstarfið við starfsfólk Starfsmenntar hefur verið einstaklega gefandi og gott. Starfsfólk Starfsmenntar leggur sig alltaf fram um að rýna vel stöðuna, koma með bestu lausnirnar þar sem fagmennska er ríkjandi. Ég sé fullt af tækifærum í frekara samstarfi við Starfsmennt og um leið get ég mælt heilshugar með allri samvinnu við það frábæra starfsfólk sem vinnur hjá Starfsmennt.

Guðrún Lárusdóttir, verkefnisstjóri starfsþróunar á Mannauðssviði HÍ (febrúar 2025)

Sýslumannsembættin

Sýslumenn hafa nýtt sér þjónustuna Ráðgjafi að láni hjá Starfsmennt og hefur samstarfið gengið vonum framar. Markmið embættanna var að kortleggja fræðsluþörfina og þróa samræmda starfsþróunaráætlun fyrir starfsfólk á öllum níu embættunum, með skrifstofur á 27 stöðum um land allt. Áherslan var á að styðja við starfsfólk á tímamótum og mæta auknum kröfum um stafræna þjónustu.

Starfshópur með fulltrúum embættanna tók ákvörðun um að leita til Starfsmenntar, meðal annars að ráðleggingum annarra embætta sem höfðu þegar reynt þjónustuna. Starfsmennt sá um gagnasöfnun og úrvinnslu og skilaði stjórnendum tilbúinni starfsþróunaráætlun. Fyrsta önnin fjallaði um rafræn samskipti og eru námskeiðin skipulögð í samræmi við áherslur áætlunarinnar.

Bjarney Inga Sigurðardóttir, ábyrgðaraðili fræðslumála, mælir eindregið með þjónustunni og segir samstarfið við Starfsmennt vera farsælt – eitthvað sem sýslumenn hyggjast byggja á til framtíðar (janúar 2023).