Stofnananám
Mín stofnun
Hér finnur þú námskeið sem eru valin í samvinnu við þína stofnun og eru aðeins ætluð starfsfólki hennar.
Markmiðið með námskeiðunum er að auka hæfni starfsfólks, bæta frammistöðu, auka sjálfsöryggi þess og starfsánægju ásamt því að bæta þjónustu og samhæfa fagleg vinnubrögð.
Hver greiðir?
Sjóðir eða stofnanir greiða fyrir þátttöku á námskeið sem eru merkt stofnuninni. Um önnur námskeið gilda almennar reglur um greiðsluþáttöku.
Hvernig á að skrá sig?
- Smelltu á þína stofnun
- Smelltu á námskeiðið sem þú vilt skrá þig á
- Smelltu á Skrá mig
- Skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum eða lykilorði
- Farðu yfir allar upplýsingar
- Staðfestu skráninguna
Að þessu loknu berst þér tölvupóstur frá okkur sem staðfestir skráningu þína á námskeiðið. Tölvupósturinn gæti lent í ruslpóstinum svo kíktu þangað ef þig er farið að lengja eftir staðfestingu.
Hafðu endilega samband ef þig vantar aðstoð!