1. grein - Um starfsreglur stjórnar
Starfsreglur þessar eru settar í samræmi við 1. gr. í samþykktum um Fræðslusetrið Starfsmennt og taka til mála er varða grundvallarekstur Starfsmenntar og aðild að Fræðslusetrinu.
Við mótun starfsreglna skal tekið mið af annars vegar markmiðum Fræðslusetursins eins og þau koma fram í 1. mgr. 2. gr. samþykktanna og hins vegar þeirri reynslu sem verður til við rekstur Starfsmenntar.
Stjórn er heimilt að gera breytingar á starfsreglum hvenær sem er en breytingar skal ávallt bera upp á stjórnarfundi til samþykktar.
2. grein - Hlutverk og ábyrgð stjórnar
Hlutverk stjórnar er að móta og þróa starfsemi Starfsmenntar í samræmi við markmið þess. Stjórn ber ábyrgð á rekstri, fjárhag og eignum. Hún ákveður verkaskiptingu milli sín og framkvæmdastjóra, með hvaða hætti tekjur eru ávaxtaðar og hver þóknun til stjórnarmanna skal vera.
Stjórn skal samþykkja fjárhags- og starfsáætlun, sem tilgreinir áherslur næsta árs, fyrir 20. desember ár hvert.
3. grein - Skipting starfa innan stjórnar
Stjórn kemur sér saman um formann, varaformann og meðstjórnendur sbr. 2. mgr. 5. gr. samþykkta.
Í tilvikum þar sem stjórnarmaður lætur af störfum skal sá aðili sem fulltrúann átti skipa annan í hans stað.
Formaður stjórnar ber meginábyrgð á starfsemi stjórnar og skal stuðla að virkni í allri ákvarðanatöku hennar. Að auki skal formaður m.a:
• Tryggja að stjórnin fái í störfum sínum nákvæmar og skýrar upplýsingar og gögn til að stjórnin geti sinnt störfum sínum.
• Hvetja til markvissra samskipta innan stjórnar og svo milli stjórnarinnar og framkvæmdastjóra.
• Ákveða dagskrá stjórnarfunda, í samstarfi við framkvæmdastjóra sem sér um boðun þeirra.
• Stýra fundum stjórnar.
4. grein - Stjórnarfundir
Stjórnarfundir eru haldnir eftir þörfum og geta stjórnarmenn hvenær sem er óskað eftir því að stjórnarfundur verði haldinn. Formanni stjórnar ber að kalla saman fund ef einhver stjórnarmaður, framkvæmdastjóri eða endurskoðandi óskar þess.
Alla jafna skal boða til fundar með minnst þriggja daga fyrirvara og skulu dagskrá og fundargögn liggja fyrir með sama fyrirvara að lágmarki. Sérstakar aðstæður geta þó komið upp sem krefjast annars fyrirkomulags og skal formaður gera grein fyrir þeim í upphafi fundar.
Varamenn sitja fundi stjórnar í forföllum aðalmanna.
5. grein - Framkvæmdastjóri
Framkvæmdastjóri starfar í umboði stjórnar og annast daglegan rekstur Starfsmenntar og skal í þeim efnum fara eftir þeirri stefnu og fyrirmælum sem stjórn gefur.
• Framkvæmdastjóri skal annast daglegan rekstur Starfsmenntar og kemur fram fyrir þess hönd í öllum málum sem varða venjulegan rekstur. Framkvæmdastjóri getur ekki gert ráðstafanir sem eru óvenjulegar eða mikils háttar, svo sem að kaupa, selja eða veðsetja eignir félagsins, taka eignir á leigu eða segja upp leigusamningi, nema samkvæmt sérstakri heimild frá stjórn.
• Framkvæmdastjóri skal sjá til þess að bókhald Starfsmenntar sé fært í samræmi við lög og venjur og að meðferð eigna sé með tryggilegum hætti. Framkvæmdastjóri skal veita endurskoðanda þær upplýsingar, gögn, aðstöðu og aðstoð sem endurskoðandi telur nauðsynleg vegna starfs síns.
• Framkvæmdastjóri sér um ráðningu starfsfólks og kallar eftir aðstoð stjórnarmanna eftir þörfum.
• Framkvæmdastjóri skal starfa innan þess ramma sem er afmarkaður í samþykktum stjórnar og í rekstrar- og starfsáætlun Starfsmenntar fyrir hvert reikningsár nema stjórn ákveði annað.
6. grein - Samstarf við aðra aðila
Samstarf við aðra aðila um þjónustu Starfsmenntar getur annars vegar falið í sér fulla aðild að Starfsmennt sem samið hefur verið um í kjarasamningum og felur í sér iðgjaldagreiðslur til setursins sem eru þær sömu og kveðið er á um í kjarasamningum aðila. Hins vegar er um að ræða óbeina aðild sem felur í sér þjónustu sem alla jafna er greidd af samstarfsaðila. Um slíkt samstarf er ávallt gerður samningur. Allar hugmyndir eða beiðnir að samstarfi þarf að taka fyrir á fundi stjórnar og bera upp til samþykktar.
Óski samstarfsaðili eftir slitum á samstarfi þarf að sama skapi að taka þá beiðni upp til samþykktar á stjórnarfundi. Samstarfi, sem stofnað hefur verið til á grundvelli kjarasamnings og felur í sér iðgjaldagreiðslur, lýkur með því að iðgjaldagreiðslur hætta að berast til Starfsmenntar á samþykktum tímapunkti. Launagreiðandi á engan rétt til endurgreiðslu á iðgjöldum sem greidd voru fyrir þann tíma. Samstarfi um greiðslur vegna þjónustu lýkur á samþykktum tímapunkti og skulu þá allar kröfur Starfsmenntar til samstarfsaðila vera uppgerðar.
Samþykkt á 201. fundi stjórnar 9. október 2025 og með rafrænni undirskrift
Jóhanna Þórdórsdóttir
Einar Mar Þórðarson
Arna Jakobína Björnsdóttir
Ásta Einarsdóttir