Vottanir

Þjónusta Starfsmenntar á sviði fræðslu, náms- og starfsráðgjafar og raunfærnimats hefur hlotið EQM gæðavottun, sem Fræðslumiðstöð atvinnulífsins veitir.

Starfsmennt hefur hlotið viðurkenningu Mennta- og barnamálaráðuneytis sem viðurkenndur framhaldsfræðsluaðili skv. lögum um framhaldsfræðslu nr. 27/2010.

Starfsmennt er einnig með viðurkennda Erasmus aðild í fullorðinsfræðslu.

Gæðahandbók

Starfsmennt gaf út sína fyrstu gæðahandbók árið 2012 og síðan þá hefur handbókin og innihald hennar verið endurskoðað reglulega.
Vorið 2021 var gæðahandbókin og innihald hennar tekið til heildarendurskoðunar og uppsetningu hennar breytt í þeim tilgangi að gera hana aðgengilegri sem leiðarvísi í daglegu starfi hjá Starfsmennt. 
Haustið 2024 var enn á ný gerð heildarendurskoðun á gæðahandbókinni og þann 1.nóvember 2024 var sjötta útgáfa hennar gefin út.
Gæðahandbókin er hugsuð sem leiðarvísir fyrir stjórn, starfsfólk, samstarfsaðila og aðra hagaðila Starfsmenntar og tekur til allra þátta starfseminnar. Í henni eru gæðaskjöl Starfsmenntar t.a.m. stefnuskjöl, verklagsreglur, vinnulýsingar og leiðbeiningar sem og sniðmát og ýmsir minnislistar sem stuðst er við í daglegu starfi.
Gæðahandbókin er vistuð á innra vinnusvæði starfsfólks fyrir utan nokkur stefnuskjöl og verklagsreglur sem eru birtar á vef Starfsmenntar.

Gæðastefna

Starfsmennt leggur áherslu á fagleg vinnubrögð og skilvirkni í öllu sínu starfi þ.m.t. gæðastarfi. 
Gæðastefnan tekur til allra þátta í starfsemi Starfsmenntar hvort sem varða þjónustu, samskipti eða annað.  
Gæðaviðmið, sem sett eru varðandi nám, ráðgjöf og raunfærnimat, taka m.a. mið af gæðaviðmiðum EQM, sem er gæðakerfi þróað af Fræðslumiðstöð atvinnulífs til notkunar í fullorðinsfræðslu utan hins formlega skólakerfis. Að auki stýra lög, reglugerðir, samþykktir, siðareglur og annað það sem um starfsemina gildir þeim viðmiðum sem lögð eru til grundvallar gæðastarfi Starfsmenntar.

Gæðastefna

Innra gæðamat og umbótaáætlun

Innra gæðamat og umbótavinna er hluti af daglegri starfsemi Starfsmenntar. Þess vegna er það fastur liður á dagskrá reglubundinna starfsmannafunda að fara yfir tilvik sem komið hafa upp og kalla á umbætur. 
Innra gæðamat fer einnig fram við uppgjör hvers árs fyrir sig og eru niðurstöður úr starfseminni birtar í ársskýrslum og ársreikningum. 
Stjórn Starfsmenntar fjallar sérstaklega um þær niðurstöður á fundum sínum og kemur með tillögur að umbótum. 
Í sérstakri verklagsreglu er yfirlit yfir þau atriði sem yfirfarin eru reglulega og varða bæði öryggi starfsfólks og innra gæðastarf.

Innra gæðamat og umbótaáætlun

Persónuverndarstefna

Starfsmennt leggur áherslu á trúnað og öryggi við meðferð persónuupplýsinga og er persónuverndarstefnunni ætlað að útskýra hvaða upplýsingum er safnað, hvernig þær eru notaðar og hvaða aðgangur er veittur að þeim. Persónuverndarstefnu er þannig ætlað að stuðla að gagnkvæmum skilningi allra sem sækja þjónustu Starfsmenntar sem og þeirra sem eru í starfi hjá fræðslusetrinu, sitja í stjórn þess eða starfa sem verktakar á vegum þess.
Persónuverndarstefnn er sett í samræmi við ákvæði laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og reglugerð ESB nr. 2016/679 (GDPR) um vernd einstaklinga í tengslum við vinnslu persónuupplýsinga og frjálst flæði slíkra upplýsinga. 
Stefnan gildir um þjónustu sem veitt er af Starfsmennt og/eða af aðilum sem sannanlega hafa verið fengnir til að starfa á vegum fræðslusetursins.

Persónuverndarstefna