Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Hvernig tryggjum við að matvæli séu örugg fyrir þau sem neyta þeirra?
Örugg meðferð matvæla skiptir miklu máli fyrir heilsu fólks. Á þessu námskeiði er farið yfir helstu atriði sem starfsfólk þarf að þekkja til að tryggja að matvæli séu meðhöndluð á réttan og öruggan hátt.
Þátttakendur fá innsýn í helstu hættur sem geta komið upp við meðferð matvæla og læra hvernig hægt er að draga úr áhættu með einföldum og góðum vinnubrögðum.
Fjallað er um móttöku, geymslu og meðferð matvæla, mikilvægi rétts hitastigs og hvernig koma má í veg fyrir krossmengun. Einnig er farið yfir hreinlæti, þrif og ábyrgð starfsfólks í matvælaöryggi.
Efnistök:
Að öðlast skýran skilning á helstu hættum í meðferð matvæla
Að geta beitt góðum og öruggum vinnubrögðum í daglegu starfi
Að geta tekið þátt í innra eftirliti á vinnustað og dregið úr líkum á matarsýkingum og krossmengun
Þau sem ekki tilheyra aðildarfélögum eða eiga rétt hjá samstarfssjóðum verða afskráð hjá Starfsmennt en geta skráð sig hjá Iðan Fræðslusetri
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða
| Dagsetning | Dagskrá | Tími | Kennari |
|---|---|---|---|
| 07.04.2026 | HACCP 1 – Hreinlæti og örugg meðferð Matvæla | 16:30 | Elísabet Katrín Friðriksdóttir |