Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Á þessu námskeiði lærir þú að útbúa vönduð og eftirtektarverð gögn í Powerpoint s.s. glærur, námsgögn og skjásýningar. Þú lærir jafnframt hvernig þú getur nýtt gervigreindina Copilot.
Þú kynnist sniðskjölum og hvernig er best að nota sniðmát, gera textabreytingar, stilla litasamsetningar og myndefni. Þú lærir á lista, töflur, mynd- og skipurit, hvernig á að stilla haus og fótlínur og setja upp minnispunkta. Þú lærir að raða glærum, setja upp útlínur, nota hreyfimyndir, hljóðsetningu og hvernig á að setja upp sjálfvirka spilun.
Þetta námskeið hentar öllum sem vilja flytja mál sitt á skýran og skilmerkilegan máta og koma efni á framfæri á lifandi og eftirtektarverðan hátt.
Vefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er.
Þegar skráningu þinni hefur verið breytt úr Nýr í Samþykkt þá getur þú hafið leikinn með því að hafa samband við kennara eða fylgja leiðbeiningum á mínar síður undir Kennslugögn.
Nemendur geta farið í gegnum námsefnið á sínum hraða, algengt er að nemendur fari yfir efnið á 3-5 vikum.
Kennari er þér innan handar í gegnum tölvupóst, með vefspjalli eða í þjónustusíma.
Aðgengi að námsefninu er opið í 12 mánuði eftir upphafsdag svo nemendur hafa nægan tíma til að rifja upp að vild.
Upplýsingar og aðstoð: sími 7888805, kennari@nemandi.is, milli 10-20 virka daga.
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða