Skatturinn | Betri tímastjórnun og skipulag á vinnustaðnum

Margir kannast við það að finnast þeir aldrei ná að ljúka verkefnunum sínum, að tíminn sé of knappur, að verkefnin séu of mörg eða stöðugar truflanir komi í veg fyrir að árangur náist. Þetta getur valdið álagi og þreytu hjá þeim ásamt togstreitu í samskiptum á vinnustaðnum.

Á námskeiðinu er þátttakendum hjálpað að ná ákveðinni heildarsýn yfir vinnudaginn og vinnusvæðið sitt. Farið verður í hvað tíminn, í vinnunni eða heima, raunverulega fer og hvernig hægt er að forgangsraða verkefnum. Einnig verður skoðað hvernig hægt er að skapa tíma fyrir mikilvægustu verkefnin og jafnframt að takast á við ýmsar truflanir, s.s. tölvupósta og símtöl sem óhjákvæmilega setja oft mikið mark á vinnudaginn. 

Á námskeiðinu verður m.a. farið í hvað felst í tímaþjófnaði, frestun, skipulagningu og áætlanagerð, fundum og fundarstjórn, að segja nei, jákvæðu hugarfari og sjálfstjórn.

Hæfniviðmið

Að geta náð betri stjórn á vinnudeginum og eigin líðan í vinnunni.

Að geta greint núverandi nýtingu á eigin tíma.

Að geta forgangsraðað verkefnum út frá mikilvægi.

Að geta sett markmið og unnið skipulag og áætlanir úr frá þeim.

Að geta borið kennsl á ýmsar truflanir og tímaþjófa og beitt aðferðum til að draga úr áhrifum þeirra.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur og umræður

Helstu upplýsingar

  • Tími
    7. desember 2023, kl. 08.30 - 09.30. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst.
  • Lengd
    1 klst.
  • Umsjón
    Ingrid Kuhlman, MSc í hagnýtri jákvæðri sálfræði (MAPP)
  • Staðsetning
    Vefnám í rauntíma, kennt á Teams
  • Tegund
    Streymi
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Starfsfólk hjá Skattinum
  • Gott að vita
    Námskeiðið stendur starfsmönnum Skattsins til boða án kostnaðar og skerðir ekki einstaklingsrétt.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Þátttaka
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
07.12.2023Betri tímastjórnun og skipulag á vinnustaðnum08:3009:30Ingrid Kuhlman