Fiskistofa - Krefjandi samskipti - Að takast á við erfiða einstaklinga - Vefnám
Áhersla er lögð á að þátttakendur tileinki sér nytsamlegar leiðir til að takast á við krefjandi einstaklinga/viðskiptavini. Unnið er með greiningu á því hvernig framkoma viðskiptavinar reynist þátttakendum erfiðust og hvers vegna, hvernig þátttakendum er tamt að bregðast við ágengri framkomu og til hvaða árangurs það leiðir. Þá er unnið með hvernig styrkleikar þátttakenda birtast í ólíkum aðstæðum og möguleika á að yfirfæra styrkleika frá einum aðstæðum yfir í aðrar. Námskeiðið er byggt á innlögnum, raunhæfum dæmum, umræðum og markmiðasetningu þátttakenda.
Lögð er áhersla á:
- Styrkleika þátttakenda í ólíkum aðstæðum og leiðir til að temja sér ný viðbrögð og yfirfæra styrkleika frá einum aðstæðum yfir í aðrar – vertu sterki aðilinn!
- Mikilvægi þess að leiða hugann að ástæðum fyrir vandanum t.d. með sjálfsþekkingu og að setja sig í spor viðskiptavinarins – hvað býr að baki?
- Ýmsar leiðir til að halda jafnvægi og vera lausnarmiðaður í erfiðum aðstæðum – auktu færni þína, sjálfsaga, sjálfsöryggi og vertu sá sem er flinkur í að tala við alla og taka á málum!
- Hvernig má á kurteislegan hátt standa fast á sínu, leiða samtalið á yfirvegaðri braut, setja mörk en sýna um leið skilning – sjálfsstyrkur og rósemi!
- Leiðir til að vernda sjálfan sig gegn ágengum einstaklingum og taka ekki ásakanir persónulega – taktu þetta ekki inn á þig!
- Viðhorf, líta á krefjandi einstaklinga sem áskorun til að þroska eigin samskiptafærni og persónustyrk – reynslubankinn: Þú ert alltaf að læra og styrkjast!
Kennt verður í gegnum Teams og fá þátttakendur sendan hlekk inn á námskeiðið með góðum fyrirvara.
Hæfniviðmið
Að þátttakendur fái innsýn í hegðun krefjandi viðskiptavina.
Að þátttakendur öðlist meira öryggi í samskiptum sínum við krefjandi viðskiptavini.
Helstu upplýsingar
- TímiMánudagur 4. oktbóber kl. 9:00-11:00
- Lengd2 klst.
- UmsjónSigríður Hulda Jónsdóttir, MA í náms- og starfsráðgjöf og MBA í stjórnun og viðskiptum frá Háskóla Íslands. Eigandi SHJ ráðgjafar.
- StaðsetningÁ Teams
- TegundFjarnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurStarfsmenn Fiskistofu sem eru aðildarfélagar Starfsmenntar
- MatMæting
- Tengiliður námskeiðsSólborg Alda Pétursdóttirsolborg(hjá)smennt.is
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Kennari |
---|---|---|
04.10.2021 | Krefjandi samskipti - Að takast á við krefjandi viðskiptavini | Sigríður Hulda Jónsdóttir |