Leiðtoginn og teymið

Námskeið á vegum Akademías fyrir öll sem þurfa að taka að sér leiðtogahlutverk í framtíðinni eða vilja þróa með sér leiðtogahæfileika.

Það er mikilvægt að ungir leiðtogar fái sjálfstraust og skilning á því hvað gerir þá að góðum leiðtogum. Það er að verða til ný kynslóð af leiðtogum sem horfir annars konar á hlutverk leiðtogans en fyrri kynslóðir. Lykilatriði er að geta unnið vel með öðru fólki. Grunnurinn af því er að þekkja sjálfan sig og skilja hvernig maður þarf að stýra til þess að ná árangri.
 
Um hvað er námskeiðið?

Námskeiðið fjallar um hvernig fólk getur orðið leiðtogi og hvers konar leiðtogi fólk er líklegast. Þá er farið yfir leiðtogastíla út frá DISC módelinu og skoðað hvernig mismunandi aðferðafræði fólks endurspeglast í leiðtogastíl. Jafnframt er farið yfir hvernig er hægt að leiða fólk til árangurs og hvernig fólk getur þjálfað sig til að verða leiðtogar.

Fyrirkomulag

Þú færð sendan póst tveimur virkum dögum eftir skráningu með kóða sem veitir aðgang að námskeiðinu. Þú hefur aðgang að efninu í 12 mánuði og getur horft á efnið og lært eins oft og þú kýst á meðan. Námið skiptist í átta hluta og er um klukkustund að lengd. 

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Námskeiðið stendur aðildarfélögum til boða á haustönn 2022. Hægt er að skrá sig og hefja nám hvenær sem er á því tímabili.
  • Lengd
    1 klst.
  • Umsjón
    Dr. Eyþór Ívar Jónsson, sérfræðingur á sviði stjórnunar og viðskiptafræða
  • Staðsetning
    Vefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Fyrir öll þau sem þurfa að taka að sér leiðtogahlutverk í framtíðinni eða vilja þróa með sér leiðtogahæfileika.
  • Gott að vita
    Eingöngu félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar geta skráð sig hér á námskeiðið. Aðrir verða að skrá sig hjá Akademias og greiða fullt gjald.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Þátttaka
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
27.10.2022Leiðtoginn og teymið12:0013:00Dr. Eyþór Ívar Jónsson