Fjársjóður Google og vefgerð

Á þessu fjölbreytta námskeiði kynnistu Google Workspace og þeim öflugu ókeypis verkfærum sem það hefur upp á að bjóða.

Þar lærir þú vefsíðugerð með Google Sites, vinnur með síður, texta og myndir, innsláttarform, myndbönd og gallerí. Þú kynnist Google Calendar, Maps, Gmail, Translate, Docs, Drive, Forms og YouTube og hvernig á að samþætta öll þessi verkfæri á heimasíðu.

Hæfniviðmið

Að geta notað Google Workspace og þau öflugu verkfæri sem það hefur upp á að bjóða.

Að geta nýtt Google Sites til vefsíðugerðar.

Fyrirkomulag

Vefnámskeið sem er opið í 3 vikur og hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Á fyrsta degi veitir kennarinn þér aðgang að rafrænu netskólakerfi þar sem námsefnið er aðgengilegt. Hann er þér innan handar í gegnum tölvupóst, vefspjall eða þjónustusíma.

Nánari upplýsingar um námskeiðið fást hjá kennara í síma 788 8805 milli kl. 10 – 20 virka daga eða í gegnum netfangið kennari(hjá)nemandi.is

Helstu upplýsingar

  • Tími
    1. nóvember 2023. Skráningu lýkur tveimur virkum dögum áður en námskeið hefst.
  • Lengd
    18 klst.
  • Umsjón
    Bjartmar Þór Hulduson, tölvukennari
  • Staðsetning
    Vefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum
  • Tegund
    Vefnám
  • Verð
    39.500 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Námið hentar öllum sem vilja læra að nýta ýmis verkfæri frá Google.
  • Gott að vita
     
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Verkefnaskil
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
01.11.2023Fjársjóður Google og vefgerð23:5923:59Bjartmar Þór Hulduson