Lýsing
- Staða trans fólks á vinnumarkaði - hverjar eru helstu áskoranirnar?
Rannsóknir á stöðu trans fólks hafa ítrekað sýnt fram á að trans fólk stendur frammi fyrir mörgum áskorunum í okkar samfélagi. Trans fólk sætir enn fordómum og mismunun á flestum stigum þjóðfélagsins fyrir það eitt að vera þau sjálf. Þrátt fyrir að vitað sé að trans fólk sé viðkvæmur hópur í samfélaginu, þá hefur staða trans fólks á vinnumarkaði lítið verið skoðuð í norrænu samhengi. Nýleg norræn rannsókn sem kom út fyrr á árinu er því bæði mikilvæg og gagnleg og varpar betur ljósi á þær hindranir sem trans fólk stendur frammi fyrir á vinnumarkaði.
Í þessu fræðsluerindi verður farið yfir helstu niðurstöður rannsóknarinnar og reynsla trans fólks af vinnumarkaði skoðuð út frá henni. Einnig verður fjallað um hvernig megi bæta stöðu þeirra, auka inngildingu og skapa meira styðjandi umhverfi fyrir trans fólk á vinnumarkaði.