Blönduós - Skjalastjórnun: Rekjanleiki, verklag og ábyrgð

Stjórnun og miðlun upplýsinga er samofin daglegu starfi hjá skipulagsheildum.

Án kerfisbundinnar skjalastjórnar er aukin hætta á að skjöl rati í rangar hendur, eyðileggist eða jafnvel glatist.

Á þessu námskeiði er fjallað um helstu þætti upplýsinga- og skjalastjórnar, s.s. helstu hugtök, lög og reglur, samspil skjalastjórnar og gæðastjórnunar, öryggismál upplýsinga, stafræna þróun og innleiðingu.

Tekin eru fyrir raunveruleg dæmi og reynt að tengja efnið sem best við reynslu þátttakenda svo það nýtist sem best í starfi.

Hæfniviðmið

Aukin skilvirkni við upplýsinga- og skjalastjórn.

Aukinn skilningur á gildi upplýsinga- og skjalastjórnunar fyrir gæðastjórnun og rekstur.

Aukinn skilningur á hvernig hægt er að innleiða aðferðafræðina á vinnustaðinn sem heild.

Fyrirkomulag

Fyrirlestrar, umræður og verkefni.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Fimmtudagur 8. október kl. 13:00 - 17:00
  • Lengd
    4 klst.
  • Umsjón
    Ragna Kemp Haraldsdóttir, aðjúnkt í upplýsingafræði við Háskóla Íslands
  • Staðsetning
    Farskólinn - Námsverið á Blönduósi, í kjallara Kvennaskólans að Árbraut 31.
  • Tegund
    Fjarnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Námið hentar þeim sem annast skipulag skjalamála á eigin vinnustað. Ekki er gert ráð fyrir að þátttakendur hafi lokið formlegu námi í skjalastjórn.
  • Gott að vita
    Eingöngu félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar geta skráð sig hér á námskeiðið.Aðrir verða að skrá sig hjá Farskólanum (Miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra).
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting og þátttaka
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce
    soffia(hjá)smennt.is

Dagskrá

DagsetningDagskráKennari
08.10.2020Skjalastjórnun: Rekjanleiki, verklag og ábyrgðRagna Kemp Haraldsdóttir