Grunnnám í reikningshaldi - EHÍ. Vefnám eða staðnám. Skráning til 11. mars

Námið er einkum ætlað þeim sem ekki hafa starfað við færslu bókhalds en vilja auka við þekkingu sína í reikningshaldi. Einnig fyrir þá sem hyggjast sækja undirbúningsnám til viðurkenningar bókara og vilja rifja upp kunnáttu sína í bókhaldi og dýpka þekkingu sína.

Námið byggir á meginreglum í reikningshaldi og lögum um ársreikninga. Unnið er út frá lagaumhverfi á Íslandi og horft til aðferða sem almennt eru viðhafðar á bókhaldsstofum. Námið styrkir grunnþekkingu þeirra sem vilja öðlast aukinn skilning á reikningshaldi.
Lögð er áhersla á verklegar æfingar í náminu. Verklegar æfingar í Excel verða því í hverjum kennsluhluta til að auka á færni nemenda að tileinka sér efni námskeiðsins.

Námið er án námsmats til einkunna og eininga.

Hægt er að sækja námið bæði í fjarnámi og staðnámi. Skráningu lýkur 11. mars.

Námið er eitt misseri. Kennsla hefst miðvikudaginn 17. mars og lýkur miðvikudaginn 17. apríl. 

Nánari upplýsingar.

Stundatafla. (Með fyrirvara um breytingar)

Frekari upplýsingar gefur Hulda Mjöll Hauksdóttir, verkefnastjóri námsins, netfang: hulda@hi.is, sími: 525-4924. Hulda er með viðtalstíma alla virka daga frá kl. 9:30 - 11:30.

Fyrirkomulag umsóknar:
Áhugasamir skrá sig hjá Starfsmennt sem sendir umsóknina til EHÍ. Hulda verkefnastjóri hjá EHÍ tekur við umsókninni og setur sig í samband við umsækjanda. 

Athugið að Starfsmennt greiðir einu sinni fyrir hvern félagsmann á hvert námskeið. 

Nái félagsmaður ekki að ljúka námskeiði sem Starfsmennt hefur greitt fyrir hann og hyggst endurtaka það er bent á starfsmenntasjóði stéttarfélaga.

Hæfniviðmið

Að auka fræðilega og hagnýta þekkingu nemenda í reikningshaldi og hæfni til að beita henni í starfi.

Fyrirkomulag

Námið byggir mikið á verklegum æfingum. 



Helstu upplýsingar

  • Tími
    Kennsla hefst miðvikudaginn 17. mars og lýkur miðvikudaginn 17. apríl 2021
  • Lengd
    52 klst.
  • Umsjón
    Snorri Jónsson, viðskiptafræðingur MBA og Master of Accounting and Auditing og Heiðar Þór Karlsson.
  • Staðsetning
    Endurmenntun Háskóla Íslands að Dunhaga 7, 107 Reykjavík, eða í fjarnámi.
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Eingöngu fyrir félagsmenn Starfsmenntar sem vilja auka við þekkingu sína í reikningshaldi.
  • Gott að vita
    Eingöngu félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar geta skráð sig hér á námskeiðið. Aðrir verða að skrá sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Námið er bæði kennt í staðnámi og fjarnámi.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Mæting og verkefnaskil
  • Tengiliður námskeiðs
    Sólborg Alda Pétursdóttir
    solborg(hjá)smennt.is

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
17.03.2021Grunnnám í reikningshaldi16:1519:15Snorri Jónsson og Heiðar Þór Karlsson