Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Gríðarleg aukning hefur orðið í framleiðslu texta á undanförnum áratugum. Sífellt fleiri þurfa að semja ritaða texta, oftast fremur stutta, bæði í starfi og einkalífi. Í langflestum tilvikum eru textar samdir til þess að aðrir lesi þá.
Nokkur lykilatriði sem hafa verður í huga eru tími, sjálfsöryggi, þekking á viðfangsefni, bygging texta, málfar og birting.
Farið verður í helstu einkenni texta sem samdir eru á íslensku og þátttakendur þjálfaðir í að semja stutta texta, t.d. tölvupósta, efni á innri vefi, heimasíður og fréttabréf.
Á námskeiðinu er fjallað um:
Ávinningur þinn:
Að læra aðferðir til þess að bæta ritun, (bygging texta og málfar) þegar rita á styttri texta t.d tölvupósta, á innri vef, heimasíður eða fréttabréf
Að læra aðferðir til þess að bæta ritun, (bygging texta og málfar) þegar rita á styttri texta t.d tölvupósta, á innri vef, heimasíður eða fréttabréf
Fyrirlestur, umræður og verkefni.
Námskeiðið fer fram í gegnum fjarfundakerfið ZOOM.
Þátttakendur þurfa að vera með nettengda tölvu, vefmyndavél, hljóðnema og góða ADSL eða ljósnet/leiðara tengingu. Mælt er með að þátttakendur noti Chrome eða Firefox vafra.
Slóð námskeiðsins verður send á það netfang sem þátttakandi hefur gefið upp við skráningu.
Eingöngu félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar geta skráð sig hér á námskeiðið.
Aðrir verða að skrá sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands.
Sæti á námskeiðin teljast ekki 100% örugg fyrr en Starfsmennt hefur breytt stöðu skráningar úr “nýr” í “samþykkt”, póstur verður sendur á þáttakendur þess efnis viku áður en námskeiðið hefst.Námskeiðið er eingöngu kennt í fjarnámi.
Endurmenntun Háskóla Íslands
Sigurður Konráðsson
Á eigin hraða
3 klst
Þátttaka
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða
Ætlað öllum sem vilja láta taka alvarlega texta sem frá þeim fara.