Reykjanesbær - Að þekkja þarfir þjónustuþega og veita góða þjónustu - Hópur 1 - Vefnám

Kröfur um góða þjónustu eru miklar, og hraðar breytingar í umhverfi stofnana hafa áhrif á samskipti og þjónustu við mismunandi hópa og einstaklinga. Léleg þjónusta er ávísun á slæmt umtal, kvartanir og óánægju þjónustuþega jafnt sem líðan og óánægju starfsmanna en góð og fagleg þjónusta ávísun á meiri ánægju viðskiptavinar og vinnugleði og líðan starfsmanns.

Framkoma, viðmót og afstaða til þjónustuþegans eru aðalviðfangsefni þessa námskeiðs. Ýmis smáatriði geta orðið að stórum atriðum sem að lokum ráða úrslitum um upplifun þjónustuþega, vinnugleði starfsmanns og það orðspor sem fer af þjónustu stofnunarinnar. Á þessu námskeiði er lögð áhersla á viðhorf og viðmót, muninn á afgreiðslu og þjónustu, þjónustulund, ánægju af því að leysa mál eða vinna úr kvörtunum þjónustuþega, innri þjónustu, þjónustu í síma og texta, og margt fleira. 

Á námskeiðinu er lögð áhersla á að heyra viðhorf og reynslu starfsmanna og miðla fræðslu og ráðum.

Hæfniviðmið

Að efla og styrkja reynt starfsfólk jafnt sem þá sem hafa unnið skemur í þjónustustarfi.

Að gefa starfsfólki tækifæri til að eiga samtal um leiðir til að gera þjónustuna þægilegri fyrir alla.

Fyrirkomulag

Fyrirlestur, umræða, virk þátttaka

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Miðvikudagur 14. október 2020 frá kl. 8:30 - 12:30
  • Lengd
    4 klst.
  • Umsjón
    Steinunn Inga Stefánsdóttir
  • Staðsetning
    Vefnám
  • Tegund
    Fjarnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Námskeiðið er aðeins ætlað þeim sem boðaðir hafa verið á það.
  • Gott að vita
    Námskeiðið er aðeins ætlað þeim sem boðaðir hafa verið á það.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Þátttaka
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce
    soffia(hjá)smennt.is

Dagskrá

DagsetningDagskráKennari
14.10.2020Að þekkja þarfir þjónustuþega og veita góðu þjónustuSteinunn Inga Stefánsdóttir frá Starfsleikni