Aftur í námskeið

Isavia - Stjórnun og starfsandi sem örvar árangur

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Í bókinni Primal Leadership eftir Richard Boyatzis, Daniel Goleman og Annie McKee er greint frá niðurstöðum á viðamiklum rannsóknum á frammistöðu 3.870 leiðtoga um allan heiminn og hvernig þeir ná að laða fram það besta hjá sínu fólki.

Niðurstöður þeirra sýna að árangursríkir leiðtogar treysta ekki á eina aðferð í stjórnun heldur beita mismunandi aðferðum, allt eftir aðstæðum. Líkja má aðferðunum við mismunandi golfkylfur þar sem golfarinn velur hentuga kylfu eftir aðstæðum. Stundum þarf hann að íhuga valið en yfirleitt velur hann án þess að velta þessu fyrir sér. Hann metur áskorunina, velur réttu kylfuna og beitir henni.

Þannig ganga árangursríkir leiðtogar einnig til verks, þeir aðlaga hegðun sína að aðstæðunum hverju sinni og velja réttu aðferðina.  Þannig þarf stundum að draga fram tilganginn með starfinu, stundum þarf að sýna ákveðni og í öðrum aðstæðum þarf að virkja fólk og skapa samstöðu.

Á námskeiðinu verður farið ofan í saumana á þeim sex aðferðum sem áhrifaríkir stjórnendur nota og hvenær hægt er að nýta þær. Fjórar aðferðir hafa mjög jákvæð áhrif á starfsanda en tvær hafa ekki jákvæð áhrif og í sumum tilfellum neikvæð áhrif en eru engu að síður áhrifaríkir og nauðsynlegir í vissum aðstæðum.

Um er að ræða hagnýtar aðferðir sem gagnast öllum stjórnendum sem vilja auka færni sína í stjórnun starfsmanna.

Efnistök

Að þekkja ólíkar stjórnunaraðferðir og hvenær þær henta
Að gera starfsandann betri
Að hafa betra læsi á ólíkar aðferðir
Að öðlast betri færin í að beita ólíkum stjórnendaaðferðum

Hæfniviðmið

Að þekkja ólíkar stjórnunaraðferðir og hvenær þær henta
Að gera starfsandann betri
Að hafa betra læsi á ólíkar aðferðir
Að öðlast betri færin í að beita ólíkum stjórnendaaðferðum

Fyrirkomulag

Fyrirlestur, umræða og virk þátttaka.

Gott að vita

Námskeiðið er aðeins fyrir þá sem boðaðir hafa verið á það.

Umsjón

Eyþór Eðvarðsson

Tengiliðir námskeiðs
  • Björg Valsdóttir - bjorg(hjá)smennt.is
Námsform

Staðnám

Tími
  • 2. júní 2022 klukkan 08:00-12:30

Lengd

4,5 klst

Mat

100% mæting.

Staðsetning

Starfsmennt Skipholt 50b, 105 Reykjavík

Verð

Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða

Markhópur

Millistjórnendur hjá ISAVIA

Dagskrá

Dagsetning

Dagskrá

Tími

Kennari

02.06.2022

Stjórnun og starfsandi sem örvar árangur

08:00

Eyþór Eðvarðsson