SSH - Skyndihjálp III - Vefnám
Það er mikilvægt að geta brugðist rétt við þegar slys verður á vinnustað. Hér er farið yfir almenna skyndihjálp og þau atriði sem hafa ber í huga þegar unnið er með fötluðum.
Námskeiðið hefst á upprifjun úr skyndihjálp I og II. Fjallað er um rafmagnsslys, kal, ofkælingu, ofhitun, eitranir, bráða sjúkdóma og sálræna skyndihjálp.
Eftir námskeiðin þrjú á að vera búið að fjalla um eftirtalin atriði:
- Aðgerðir á vettvangi
- Skoðun og mat
- Endurlífgun fullorðinna og barna
- Losun aðskotahluta
- Brunasár
- Blæðing
- Beinbrot og liðáverkar
- Höfuðáverkar
- Sálrænn stuðningur
- Bráð veikindi, s.s. brjóstverkur, bráðaofnæmi, flogaveiki, sykursýki, öndunarerfiðleika og heilablóðfall
Þegar fólk hefur lokið Skyndihjálp I II og III hefur það lokið grunnnámskeiði í skyndihjálp.
Hæfniviðmið
Að þátttakendur öðlist grunnfærni í að beita skyndihjálp og sálrænum stuðningi í neyðartilvikum.
Fyrirkomulag
Umræður, fyrirlestur og verklegar æfingarHelstu upplýsingar
- TímiMiðvikudagur 18. nóvember 2020 frá kl. 09:00 - 12:00
- Lengd3 klst.
- UmsjónLaufey Gissurardóttir
- StaðsetningVefnám
- TegundFjarnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurNám ætlað starfsmönnum sem starfa að málefnum fatlaðs fólks í Kópavogi, Hafnarfirði, Mosfellsbæ, Garðabæ og Seltjarnarnes.
- Gott að vitaNámskeiðið er aðeins ætlað þeim sem boðaðir hafa verið á það.
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
- MatÞátttaka
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacrocesmennt(hjá)smennt.is
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Kennari |
---|---|---|
18.11.2020 | Skyndihjálp III | Laufey Gissurardóttir , leiðbeinandi í skyndihjálp og þroskaþjálfi. |