Endurmenntun atvinnubílstjóra - Umhverfi - Vistakstur - Öryggi í akstri

ATH. atvinnubílstjórar skrá sig á námskeiðið hjá Starfsmennt. Kóði er síðan sendur til þátttakenda sem þau nota til að skrá sig á námskeiðið hjá Ökulandi

Á námskeiðinu er farið yfir hugmyndafræði vistaksturs og hvernig bílstjórar geta lágmarkað eldsneytiseyðslu og umhverfismengun með réttri tækni. Lögð er áhersla á að nemendur tileinki sér aksturslag sem hámarkar öryggi þeirra sjálfra og annarra vegfarenda, þar sem vistvæn og örugg nálgun fara saman við daglegan akstur.

Sjá nánar um endurmenntun atvinnubílstjóra: Samgöngustofa-endurmenntun atvinnubílstjóra

Hæfniviðmið

Að þekkja hugmyndafræði vistaksturs

Að þekkja með hvaða hætti hægt er að lágmarka eldsneytiseyðslu og umhverfismengun

Að þekkja hvernig hægt er að hámarka öryggi sitt og annarra í umferðinni með réttu aksturslagi

Fyrirkomulag

Vefnám - hægt er að skrá sig hvenær sem er. Þátttakendur hafa 48 klst. til að ljúka námskeiðinu

Helstu upplýsingar

  • Lengd
    48 klst.
  • Umsjón
    Ökuland
  • Staðsetning
    Vefnám
  • Tegund
    Vefnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Aðilar sem hafa það að atvinnu að keyra bíla í flokki C1, C, D1 og D og eru aðildarfélagar Starfsmenntar
  • Gott að vita

    Hver einstaklingur má aðeins taka námskeiðið einu sinni á fimm árum

  • Mat
    Að ljúka námskeiði á 48 klukkustundum

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
31.12.2026Umhverfi - Vistakstur - Öryggi í akstri00:0000:00Ökuland