Tölvuleikni og Windows stýrikerfið
Viltu styrkja tölvuleikni þína og öðlast betri skilning á Windows stýrikerfinu?
Microsoft Windows er stýrikerfi, grunnurinn sem tölvan keyrir á. Það sér um að tengja saman forrit, skrár, tæki og notendur svo allt virki hnökralaust. Góð tölvuleikni snýst um að vita hvar þú finnur hlutina, hvernig þú heldur utan um skjöl og hvernig þú stillir tölvuna þannig að hún virki fyrir þig, ekki á móti þér.
Á námskeiðinu lærir þú aðferðir til að stjórna Windows á öruggan og einfaldan hátt.
Efnistök:
Grunnatriði og helstu aðgerðir:
- Hvað er Windows
- Gluggar og stýring þeirra
- Keyra forrit eins og Word, Excel og Teams
Möppur og skjöl
- Búa til möppur
- Vista og finna skjöl
- Færa, afrita og eyða skrám
Stillingar og persónusnið
- Tengja prentara og skjái
- Stilla hljóð og myndavél
- Velja tungumál
- Aðlaga aðgangsstillingar
Öryggi
- Innskráning og lykilorð
- Vírusvörn
- Uppfærslur
„Multitasking“
- Hafa mörg forrit opin samtímis
- Skipta skjá (snap)
- Nota marga skjái
Tengingar og samhæfing
- Tengjast Wi-Fi og Bluetooth
- Nota skýjaþjónustur
- Samhæfa tæki
Algeng hjálparforrit
Hæfniviðmið
Að öðlast traustan grunn í tölvunotkun og betri skilning á Windows stýrikerfinu, sem nýtist í daglegu starfi og einkalífi
Fyrirkomulag
Þú getur lært á eigin hraða, aðgangur að námsefni opið í 12 mánuði frá skráningu.
Þegar skráning hefur verið samþykkt finnur þú leiðbeiningar undir Kennslugögn á Mínar síður til að komast á lokað námssvæði, þar eru myndbönd og allt kennsluefni.
Kennarinn er þér til taks í gegnum tölvupóst, vefspjall eða síma milli kl. 10 - 20 virka daga. S: 788 8805 / kennari@nemandi.is
Helstu upplýsingar
- TímiSkráning er opin til 1. maí 2026 en upphafið er valfrjálst
- Lengd18 klst.
- UmsjónBjartmar Þór Hulduson, tölvukennari
- StaðsetningVefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum
- TegundVefnám
- Verð52.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurÖll sem vilja styrkja tölvuleikni sína, sérstaklega þeim sem hafa takmarkaða reynslu af tölvunotkun og vilja öðlast aukið sjálfstraust í stafrænu umhverfi
- MatVerkefnaskil
Dagskrá
| Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
|---|---|---|---|---|
| 01.05.2026 | Tölvuleikni - Windows stýrikerfið | 10:00 | 04:00 | Bjartmar Þór Hulduson |