Word II

Viltu dýpka þekkingu þína á Word og vinna með flóknari skjöl?

Word II er framhald af Word I, á þessu námskeiði lærir þú að vinna með lengri og flóknari skjöl á skipulagðan og skilvirkan hátt. Þú lærir m.a. að búa til sniðmát, skipa skjölum í kafla, setja upp efnisyfirlit sjálfkrafa, nota neðanmálsgreinar og atriðisorðaskrár. Einnig kynnist þú helstu öryggisstillingum. Með þessum verkfærum getur þú unnið fjölbreytt verkefni á fagmannlegan hátt og búið til vandaðar skýrslur í starfi, námi eða persónulegum verkefnum.

Efnistök:

  • Sniðmát og textasnið
  • Uppbygging lengri skjala og skýrslna
  • Kaflaskipting og efnisyfirlit
  • Aðal- og undirskjöl
  • Neðanmálsgreinar
  • Atriðisorða- og myndaskrár
  • Sjálfvirk og handvirk uppsetning
  • Helstu öryggisstillingar 

Hæfniviðmið

Að öðlast dýpri skilning og færni í Word, til að geta unnið með umfangsmikil skjöl á skilvirkan og faglegan hátt

Fyrirkomulag

Þú getur lært á eigin hraða, aðgangur að námsefni opið í 12 mánuði frá skráningu.

Þegar skráning hefur verið samþykkt finnur þú leiðbeiningar undir Kennslugögn á Mínar síður til að komast á lokað námssvæði, þar eru myndbönd og allt kennsluefni. 

Kennarinn er þér til taks í gegnum tölvupóst, vefspjall eða síma milli kl. 10 - 20 virka daga. S: 788 8805 / kennari@nemandi.is 

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Skráning er opin til 1. maí 2026 en upphafið er valfrjálst
  • Lengd
    18 klst.
  • Umsjón
    Bjartmar Þór Hulduson, tölvukennari
  • Staðsetning
    Vefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum
  • Tegund
    Vefnám
  • Verð
    52.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Öll sem hafa grunnþekkingu á Word og vilja þróa áfram færni sína
  • Mat
    Verkefnaskil

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
01.05.2026Word II10:0004:00Bjartmar Þór Hulduson