Árangursrík samskipti með líkamstjáningu- vefnám
Örn Árnason leikari sýnir á skemmtilegan hátt í þremur örþjálfunarmyndböndum hvernig líkamstjáning og raddbeitingin hafa áhrif á hvort samskipti þín séu árangursrík.
Örþjálfunarmyndböndin þrjú eru eftirfarandi:
1. Góð samskipti byrja hjá okkur sjálfum.
2. Breytir raddbeiting merkingu orða?
3. Hlusta með augunum.
Námskeiðið nýtist jafnt í samskiptum við viðskiptavini og samstarfsfólk hvort sem þau fara á netinu eða augliti til auglitis.
Námskeiðinu fylgja verkefni sem gefa þér tækifæri í að æfa þig í að lesa aðra og bæta þína eigin samskiptatækni.
Hæfniviðmið
Að skilja mikilvægi líkamstjáningar og raddbeitingar í árangursríkum samskiptum
Að átta sig á mikilvægi samskiptatækni í virkri hlustun
Að vita að jafnvel lítil atriði í samskiptatækni þinni geta haft mikil áhrif á upplifun annarra
Að styrkja öryggi í samskiptum og fagmennsku
Fyrirkomulag
Vefnám.Helstu upplýsingar
- TímiHefst 19. október og er opið í 3 vikur.
- Lengd12 klst.
- UmsjónMargrét Reynisdóttir
- StaðsetningVefnám
- TegundFjarnám
- Verð21.600 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurFyrir alla sem vilja bæta sig árangursríkum samskiptum.
- Gott að vitaNámið er fyrir þá sem vilja bæta sig í samskiptum.
- MatVerkefnaskil.
- Tengiliður námskeiðsBjörg Valsdóttirbjorg(hjá)smennt.is
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Kennari |
---|---|---|
19.10.2021 | Árangursrík samskipti með líkamstjáningu | Margrét Reynisdóttir |