Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Skráningu lýkur 10. mars kl.10:00.
Microsoft Teams, ásamt öðrum Microsoft 365 (M365) afurðum hefur verið innleitt hjá fjölda fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga enda frábært tæki til að halda utan um teymi, fjarfundi, deila gögnum, spjalla (e. chat) og margt fleira.
Færri vita af Microsoft Planner og því sem það hefur fram að færa en með því má skipuleggja verkefni, útdeila verkþáttum, virkja áminningar og sjá framvindu verkefna frá mælaborði.
Með Microsoft Planner getur þú og teymið þitt sett fram áætlun um verkefni, deilt út verkþáttum, átt í samskiptum ykkar á milli og séð framvindu verkþátta frá mælaborði.
Haldið utan um fundargerðir, verið með upplýsingasíðu og fleira tengt verkefninu.
Þetta námskeið fjallar fyrst og fremst um hvernig þú getur nýtt þér Planner við skipulag og verkefnastjórnun og tengingu Planner við Teams.
Á námskeiðinu er fjallað um:
Ath. Gert er ráð fyrir að þátttakendur hafi þekkingu á Teams og/eða hafi lokið grunnnámskeiðinu, Microsoft Teams & OneDrive hjá EHÍ.
Fyrirlestur og verkefni.
Námskeiðið er eingöngu kennt í fjarnámi.
Námskeiðið fer fram í gegnum fjarfundakerfið ZOOM.
Þátttakendur þurfa að vera með nettengda tölvu, vefmyndavél, hljóðnema og góða ADSL eða ljósnet/leiðara tengingu.
Mælt er með að þátttakendur noti Chrome eða Firefox vafra.
Þátttakendur þurfa að hafa Teams aðgang uppsettan áður en að námskeið hefst.
Slóð námskeiðsins verður sent á það netfang sem þátttakandi hefur gefið upp við skráningu.
Eingöngu félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar geta skráð sig hér á námskeiðið.
Aðrir verða að skrá sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands.
Sæti á námskeiðin teljast ekki 100% örugg fyrr en Starfsmennt hefur breytt stöðu skráningar úr “nýr” í “samþykkt”, póstur verður sendur á þátttakendur þess efnis viku áður en námskeiðið hefst. Námskeiðið er eingöngu kennt í fjarnámi.
Endurmenntun Háskóla Íslands
Streymi
3 klst
Mæting
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða
Námskeiðið er ætlað notendum Office 365 pakkans sem vilja nýta sér möguleika hans enn betur.
Dagsetning | Dagskrá | Tími | Kennari |
|---|---|---|---|
27.03.2023 | Microsoft Planner og Teams | 09:00 | Atli Þór Kristbergsson |