Wix, vefsíðugerð

Viltu búa til eigin vefsíðu án tæknilegrar þekkingar?

Wix er vefumsjónarkerfi sem gerir þér kleift að búa til og reka vefsíðu frá grunni án þess að kunna forritun eða hafa tæknilegan bakgrunn. Með Wix er hægt að:

  • Búa til vefsíður 
  • Kynna/selja vöru, þjónustu eða starfsemi
  • Safna tengiliðum og fyrirspurnumAuka sýnileika á netinu

Á þessu námskeiði kynnist þú notendaviðmóti Wix, helstu hugtökum vefgerðar og helstu aðgerðum, allt frá því að búa til fyrstu síðuna þína upp í að tengjast lén, safna skráningum og koma þér í leit á Google.

Efnistök:

Kynning og undirbúningur

  • hvað er Wix og til hvers hentar það?

Uppsetning og grunnskref

  • stofna aðgang og velja sniðmát
  • að tengja lén og tölvupóst við síðu

Efni og framsetning

  • setja inn myndir og myndbönd
  • myndasöfn og fréttasíður

Samskipti og tengslamyndun

  • tengiliðaform og samskiptaleiðir
  • setja inn skráningarform
  • safna upplýsingum og setja upp póstlistakerfi

Sýnileiki og aðgengi

  • Leitarvélabestun 

Hæfniviðmið

Að öðlast hagnýta færni til að búa til og viðhalda eigin vefsíðu með Wix

Fyrirkomulag

Þú getur lært á eigin hraða, aðgangur að námsefni opið í 12 mánuði frá skráningu.

Þegar skráning hefur verið samþykkt finnur þú leiðbeiningar undir Kennslugögn á Mínar síður til að komast á lokað námssvæði, þar eru myndbönd og allt kennsluefni. 

Kennarinn er þér til taks í gegnum tölvupóst, vefspjall eða síma milli kl. 10 - 20 virka daga. S: 788 8805 / kennari@nemandi.is 

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Skráning er opin til 1. maí 2026 en upphafið er valfrjálst
  • Lengd
    18 klst.
  • Umsjón
    Bjartmar Þór Hulduson, tölvukennari
  • Staðsetning
    Vefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum
  • Tegund
    Vefnám
  • Verð
    52.000 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Öll sem vilja búa til eigin vefsíðu, hvort sem er fyrir fyrirtæki, félagasamtök eða persónulega notkun, án þess að hafa bakgrunn í vefhönnun eða forritun
  • Mat
    Verkefnaskil

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
01.05.2026Wix, vefsíðugerð10:0004:00Bjartmar Þór Hulduson, tölvukennari