Trúnaðarmenn Sameykis - Stytting vinnuvikunnar - vinnustofa - Vefnám
Þetta námskeið er sérstaklega hannað fyrir starfsfólk í vaktavinnu.
Meðal helstu markmiða vinnutímastyttingar eru að stuðla að umbótum í starfsemi vinnustaða og bæta vinnustaðamenningu og nýtingu vinnutíma án þess að draga úr skilvirkni og gæðum þjónustu. Auk þess er markmiðið að tryggja betur gagnkvæman sveigjanleika og stuðla þannig að bættum lífskjörum og betri samþættingu starfs og einkalífs.
Margir sem hafa upplifað styttingu vinnuvikunnar á eigin skinni nefna meðal annars að hún feli í sér mun meiri lífsgæði en þeir höfðu reiknað með. Starfsfólki finnst það hafa meiri tíma fyrir sig og fjölskyldu sína og finnur auk þess jákvæðan mun á andlegri og líkamlegri heilsu. Starfsmannahópar sem vinna sameiginlega að styttingu upplifa aukið sjálfræði og sjálfstæði með tilheyrandi jákvæðum áhrifum á ánægju í starfi og starfsanda. Þó að það sé krefjandi verkefni að undirbúa vinnutímabreytingar er sannarlega til mikils að vinna fyrir starfsfólkið, vinnustaðinn og samfélagið í heild.
Breytingar á vinnufyrirkomulagi og fækkun vinnustunda krefjast undirbúnings og skipulagningar hjá bæði stjórnendum og starfsfólki og mikilvægt að vanda til verka. Finna þarf leiðir til að endurskipuleggja vinnuna, einfalda ferla, auka skilvirkni og nýta vinnutímann betur, m.a. með hjálp tækninnar og góðrar skipulagningar.
Í vinnustofunni verður rætt um leiðir að breyttu skipulagi vinnunnar og fjallað um atriði eins og forgangsröðun, skipulagningu, markmiðasetningu, tölvupóstsamskipti, skipulag funda, truflanir o.s.frv.
Fjallað verður m.a. um:
• Hugarfar og nýsköpun í breytingum
• Ábyrgð starfsmanna á að finna bestu leiðina og líta í eigin barm
• Mikilvægi þess að huga að félagslega þættinum og vinnustaðamenningunni
• Lærdómsferlið – breytingar taka tíma o eru ekki meitlaðar í stein
Fyrirkomulag
Fyrirlestur, umræður og virk þátttakaHelstu upplýsingar
- Tímiþriðjudagur 19. janúar kl. 9:00-12:00
- Lengd3 klst.
- UmsjónIngrid Kuhlman MSc í hagnýtri jákvæðri sálfræði (MAPP)
- StaðsetningVefnám
- TegundFjarnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurTrúnaðarmenn Sameykis
- Gott að vita
- MatMæting og virkni á námskeiði
- Tengiliður námskeiðsSólborg Alda Pétursdóttirsolborg(hjá)smennt.is
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Kennari |
---|---|---|
19.01.2021 | Stytting vinnuvikunnar - vinnustofa | Ingrid Kuhlman |