Aftur í námskeið

Myndvinnsla með snjalltækjum

Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.

Lýsing

Á þessu námskeiði lærir þú að vinna myndirnar þínar í byrjendavænum forritum á snjalltækjum. Þú getur hafið námið þegar þér hentar með því að hafa samband við kennarann og beðið um að hann opni á aðganginn um leið og skráning hefur verið samþykkt.

Þú kynnist notendaviðmóti vinsælla myndvinnsluforrita á borð við Snapseed, hvernig myndstillingar, kúrvur og hvítjöfnun virka. Þú lærir að litajafna myndir og lagfæra þær, hvernig á að nota blettabana, síur og breyta bakgrunninum. Ásamt því hvernig á að vinna andlitsmyndir, stilla texta og ramma og hvernig myndefni er unnið fyrir ólíka miðla.

Hæfniviðmið

Að geta unnið með myndir í byrjendavænum forritum á snjalltækjum.
Að geta nýtt sér notendaviðmót ýmissa myndvinnsluforrita.

Fyrirkomulag

Vefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Á fyrsta degi veitir kennarinn þér aðgang að rafrænu netskólakerfi þar sem námsefnið er aðgengilegt. Hann er þér innan handar í gegnum tölvupóst, vefspjall eða þjónustusíma.

Nánari upplýsingar um námskeiðið fást hjá kennara í síma 788 8805 milli kl. 10 – 20 virka daga eða í gegnum netfangið kennari(hjá)nemandi.is

Umsjón
Bjartmar Þór Hulduson
Tengiliðir námskeiðs
  • Soffía G. Santacroce
Námsform
Á eigin hraða
Lengd
0 klst
Mat
Verkefnaskil
Verð
52.000 kr

Án kostnaðar fyrir aðildarfélaga og samstarfssjóði.

Markhópur
Námið hentar þeim sem vilja auka færni sína í notkun myndvinnsluforrita.