Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Á þessu námskeiði lærir þú að nota WIX til þess að búa til vefsíu frá grunni. Forritið er afar öflugt og skemmtilegt og gerir venjulegum notendum mögulegt að hanna og vinna vefsíðu án tæknilegrar þekkingar. Þú getur hafið námið þegar þér hentar með því að hafa samband við kennarann og beðið um að hann opni á aðganginn um leið og skráning hefur verið samþykkt.
Þú kynnist notendaviðmóti Wix, helstu hugtök vefgerðar, hvernig þú tengir lén og tölvupóst við síðuna þína. Þú lærir að búa til vef, að setja inn myndir og myndbönd, myndasöfn og féttasíðu, hvernig á a setja inn skráningarform, safna upplýsingum og setja upp póstlistakerfi. Þá kynnistu grunnhandtökunum við leitarvélabestun.
Kennarinn veitir þér aðgang að rafrænu netskólakerfi. Þar skoðar þú námsefnið og leysir verkefni rafrænt. Námskeiðið stendur yfir í 3 vikur en stuðningur er veittur að því loknu. Þú hefur aðgang að námsefninu allt skólaárið.
Nánari upplýsingar um námskeiðið fást hjá kennara í síma 788 8805 milli kl. 10 – 20 virka daga eða í gegnum netfangið kennari(hjá)nemandi.is.
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða