Hugarkort
Á þessu námskeiði lærir þú aðferðafræði hugarkorta og hvernig er best að setja þau upp. Þú getur hafið námið þegar þér hentar með því að hafa samband við kennarann og beðið um að hann opni á aðganginn um leið og skráning hefur verið samþykkt.
Hugarkort eru öflugt verkfæri sem hægt er að nota til að auka færni í starfi og námi. Þau gefa nýja leið til að greina og meta einföld sem flókin viðfangsefni bæði til að þróa nýjar hugmyndir, festa efni betur í minni og auka skilning á viðfangsefninu. Með hugarkortum er hægt að skipuleggja hugsun og þekkingu á hagnýtan, skemmtilegan og árangursríkan hátt. Hugarkort eru einnig mikið notuð sem glósutækni og í dag er gerð þeirra kennd við marga háskóla til stuðnings við lærdóm og sköpun.
Þú lærir að gera hugarkort og leysir hagnýt verkefni. Þú kynnist forritinu XMind sem er frír hugbúnaður fyrir hugarkortagerð.
Hæfniviðmið
Að efla færni í notkun hugarkorta.
Að auka þekkingu á möguleikum hugarkorta.
Fyrirkomulag
Kennarinn veitir þér aðgang a rafrænu netskólakerfi. Þar skoðar nú námsefnið og leysir verkefni rafrænt. Námskeiði stendur yfir í 3 vikur en stuðningur er veittur að því loknu. Þú hefur aðgang að námsefninu allt skólaárið.
Helstu upplýsingar
- TímiSkráning er opin til 28. maí en upphafið er valfrjálst.
- Lengd18 klst.
- UmsjónBjartmar Þór Hulduson, tölvukennari.
- StaðsetningVefnám utan rauntíma sem hægt er að nálgast hvar og hvenær sem er á námstímanum
- TegundFjarnám
- Verð39.500 kr.
- MarkhópurNámið hentar öllum sem vilja læra að nýta hugarkort í leik og starfi.
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacroce
- MatVerkefnaskil
Gott að vita
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Kennari |
---|---|---|
28.05.2023 | Hugarkort | Bjartmar Þór Hulduson |