Hugarkort - Mind Mapping - Vefnám - Valfrjálst upphaf til 28. maí
Hugarkort eru öflugt verkfæri sem hægt er að nota til að auka færni í starfi og námi.Þau gefa nýja leið til að greina og meta einföld sem flókin viðfangsefni bæði til að þróa nýjar hugmyndir, festa efni betur í minni og auka skilning á viðfangsefninu.
Með hugarkortum er hægt að skipuleggja hugsun og þekkingu á hagnýtan, skemmtilegan og árangursríkan hátt. Hugarkort eru einnig mikið notuð sem glósutækni og í dag er gerð þeirra kennd við marga háskóla til stuðnings við lærdóm og sköpun.
Á námskeiðinu er kennd aðferðafræði hugarkorta og nýting þeirra með notkun á (ókeypis) hugbúnaði.
Námsþættir:
- Gerð hugarkorta, hagnýt verkefni.
- Xmind -Notendavænn hugbúnaður fyrir hugarkortagerð.
Hæfniviðmið
Að efla færni í notkun hugarkorta.
Að auka þekkingu á möguleikum hugarkorta.
Fyrirkomulag
Á fyrsta degi leiðir kennari nemendur inn í rafrænt netskólakerfi þar sem námsefnið er aðgengilegt. Kennari er nemendum innan handar með tölvupósti, vefspjalli og í þjónustusíma. Námskeið stendur yfir í þrjár vikur auk þess sem stuðningstími er veittur að því loknu.
Nánari upplýsingar varðandi námið veitir kennari námskeiðsins í síma 788 8805 frá kl. 10-20 á virkum dögum eða í netfangið kennari(hjá)nemandi.is.
Helstu upplýsingar
- TímiSkráning er opin til 28. maí en upphafið er valfrjálst.
- Lengd18 klst.
- UmsjónBjartmar Þór Hulduson, tölvukennari.
- StaðsetningVefnám
- TegundFjarnám
- Verð39.500 kr. / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurNámið hentar öllum sem vilja læra að nýta hugarkort í leik og starfi.
- Gott að vitaVefnámskeið sem hægt er að stunda hvar og hvenær sem er. Mikill sveigjanleiki.
- MatVerkefnaskil
- Tengiliður námskeiðsSoffía G. Santacrocesoffia(hjá)smennt.is
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Kennari |
---|---|---|
28.05.2022 | Hugarkort | Bjartmar Þór Hulduson |