Kraftmiklar kynningar og framkoma á netinu - Vefnám 24. mars kl. 09:00 - 12:00

Eftir ástandið síðustu mánuði höfum við nánast öll þurft að færa einhver samskipti yfir á netið, hvort sem eru fundir, teymisvinna eða kynningar.

Á þessu hagnýta námskeiði efla þátttakendur sig í að miðla upplýsingum í gegnum netið sem er ákveðin áskorun.

Farið verður yfir lykilatriði sem snúa að tilgangi og skilaboðum, framsetningu efnis og framkomu.

Á námskeiðinu er fjallað um:

  • Undirbúning kynninga og uppsetningu.
  • Tilgang og markmið kynninga.
  • Mátt sögunnar í skilaboðum.
  • Framsetningu efnis.
  • Framkoma í gegnum netið.
  • Notkun forrita eins og Zoom.

 

Hæfniviðmið

Að efla færni í að miðla skilaboðum í gegnum netið.

Að fá góð ráð við notkun forrita eins og Zoom við fjarkynningar.

Að kynnast kraftmiklum aðferðum við mótun, uppsetningu og framsetningu kynninga.

Að læra góða framkomu í gegnum netið hvort sem er við kynningar eða sem hlustandi.

Fyrirkomulag

Námskeiðið fer fram í gegnum forritið Zoom og samanstendur af kynningu, verkefnavinnu og umræðum í hópum.

Helstu upplýsingar

  • Tími
    Mánudagur 24. mars kl. 09:00 - 12:00
  • Lengd
    3 klst.
  • Umsjón
    Svava Björk Ólafsdóttir er MPM verkefnastjóri og annar af stofnendum RATA.
  • Staðsetning
    Vefnám
  • Tegund
    Staðnám
  • Verð
    Án kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
  • Markhópur
    Námskeiðið er fyrir aðila sem nota fjarvinnuforrit að einhverju leyti við vinnu eða önnur samskipti.
  • Gott að vita
    Aðildarfélögum Starfsmenntar að kostnaðarlausu.Sæti á námskeiðin teljast ekki 100% örugg fyrr en Starfsmennt hefur breytt stöðu skráningar úr “nýr” í “samþykkt”, póstur verður sendur á þáttakendur þess efnis viku áður en námskeiðið hefst
Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað!
  • Mat
    Þátttaka
  • Tengiliður námskeiðs
    Soffía G. Santacroce
    soffia(hjá)smennt.is

Dagskrá

DagsetningDagskráFráTilKennari
24.03.2021Kraftmiklar kynningar og framkoma á netinu09:0012:00Svava Björk Ólafsdóttir