Grunnnám í bókhaldi - EHÍ - Vefnám. 12. apríl
ATH námið er í fjarnámi. Kennt er alla jafna mán., mið. og fim. í fimm vikur. Einnig kennt fös. 16. og 23. apríl en þá fellur kennsla niður fim. 15. og 22. apríl. Að auki verður kennt þriðjudaginn 11. maí. Kennt er alla daga frá kl. 9:00 - 12:00.
Samtals 45 klst. og val um þrjár klst. á bókhaldsstofu.
Nemendur fá þjálfun í færslu fjárhagsbókhalds og nú gefst þeim sem ekki hafa reynslu í bókhaldsstörfum tækifæri til að stíga skrefið og fá þá þjálfun og færni sem þarf til að starfa við færslu bókhalds.
Kennt er á bókhaldsforritið Reglu þar sem nemendur læra að færa fjárhagsbókhald sem byggir á verklegum æfingum með raungögnum í raunumhverfi á rauntíma. Einnig fjallað um helstu lög og reglugerðir varðandi færslu bókhalds, svo sem lög um bókhald, lög um tekjuskatt og lög um virðisaukaskatt. Jafnframt fjallað um helstu reglur varðandi skil á opinberum gjöldum.
Námið hefst mán. 12. apríl 2021.
Frekari upplýsingar gefur Hulda Mjöll Hauksdóttir, verkefnastjóri námsins hjá EHÍ, netfang: hulda@hi.is, sími: 525-4929. Hulda er með viðtalstíma alla virka daga frá kl. 9:30 - 11:30.
Fyrirkomulag umsóknar:
Áhugasamir skrá sig hjá Starfsmennt sem sendir umsókn um námið til EHÍ. Hulda verkefnastjóri hjá EHÍ tekur við umsókninni og setur sig í samband við umsækjanda.
Athugið að Starfsmennt greiðir einu sinni fyrir hvern félagsmann á hvert námskeið.
Nái félagsmaður ekki að ljúka námskeiði sem Starfsmennt hefur greitt fyrir hann og hyggst endurtaka það er bent á starfsmenntasjóði stéttarfélaga.
Hæfniviðmið
Að geta fært fjárhagsbókhald
Að geta stofnað viðskiptavini
Að geta stofnað vörunúmer
Að geta gert sölureikning
Að geta gert vsk uppgjör
Að geta fært laun
Að geta gert leiðréttingar í fjárhag
Að geta gert afstemmingar
Að geta prentað út stöðu fjárhags, skuldunauta og lánardrottna
Að geta skoðað rekstararreikning og efnahagsreikning
Að þekkja helstu lög og reglugerðir varðandi bókhald
Að geta þekkt helstu reglur um skil á opinberum gjöldum
Fyrirkomulag
Fyrirlestrar og verklegar æfingar.Helstu upplýsingar
- TímiNámið hefst mán. 12. apríl 2021.
- Lengd45 klst.
- UmsjónInga Jóna Óskarsdóttir viðurkenndur bókari og Vala Valtýsdóttir lögfræðingur.
- TegundStaðnám
- VerðÁn kostnaðar / Námskeiðið er félagsfólki aðildarfélaga og samstarfssjóða að kostnaðarlausu
- MarkhópurAðildarfélagar Starfsmenntar sem vilja læra að færa bókhald og fá þjálfun í raunverulegu bókhaldsumhverfi með aðgengi að raunverulegum bókhaldsgögnum.
- Gott að vitaTilvalið nám fyrir þá sem dreymir um að þreyta próf til viðurkenningar bókara en hafa ekki reynslu í færslu bókhalds.
- Tengiliður námskeiðsSólborg Alda Petursdóttirsolborg(hjá)smennt.is
Dagskrá
Dagsetning | Dagskrá | Frá | Til | Kennari |
---|---|---|---|---|
12.04.2021 | Grunnnám í bókhaldi | 09:00 | 12:00 | Inga Jóna Óskarsdóttir og Vala Valtýsdóttir |