Skráningu á þetta námskeið hefur verið lokað.
Fjallað er um tegundir skjala, m.a. erindi / bréf á pappír, tölvupóst, samninga, ljósmyndir, teikningar, bókhaldsgögn, eyðublöð og kynningarefni.
Farið verður stuttlega í íslensk lög og reglugerðir er varða skjalastjórn á Íslandi fyrir opinberar stofnanir og sýnt fram á hvernig hægt er að beina sambærilegum aðferðum við skjalastjórn í fyrirtækjum í einkaeigu.
Fjallað verður um ISO 15489 sem er alþjóðlegur staðall um skjalastjórnun.
Umfjöllunarefni:
• Nokkur hugtök í skjalastjórn sem nýtast í starfi.
• Hlutverk Þjóðskjalasafns fyrir opinberar stofnanir og sveitarfélög.
• Skjalatalning – yfirsýn yfir þau gögn sem verið er að nota.
• Skjalavistunaráætlun fyrir virk og óvirk skjöl.
• Flokkun skjala, skráning, vistun og endurheimt.
• Skjalageymslur og pökkun skjala.
• Hvernig má standa að innleiðingu á rafrænu skjalastjórnunarkerfi, hvað ber að varast og hver eru fyrstu skrefin.
Á námskeiðinu eru tekin fyrir raunveruleg dæmi og reynt að tengja efnið sem best við reynslu þátttakenda hverju sinni svo það nýtist beint í starfi.
Að auka skilvirkni við upplýsinga- og skjalastjórn.
Að auka skilning á gildi upplýsinga- og skjalastjórnunar fyrir gæðastjórnun og rekstur.
Að auka skilning á hvernig hægt er að innleiða aðferðafræðina á vinnustaðinn sem heild.
Aðildarfélögum Starfsmenntar að kostnaðarlausu.
Eingöngu félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar geta skráð sig hér á námskeiðið.Aðrir verða að skrá sig hjá Endurmenntun Háskóla Íslands.
Sæti á námskeiðin teljast ekki 100% örugg fyrr en Starfsmennt hefur breytt stöðu skráningar úr “nýr” í “samþykkt”, póstur verður sendur á þáttakendur þess efnis viku áður en námskeiðið hefst
Án kostnaðar fyrir félagsfólk aðildarfélaga og samstarfssjóða
Námið hentar þeim sem annast skipulag skjalamála á eigin vinnustað.
Ekki er gert ráð fyrir að þátttakendur hafi lokið formlegu námi í skjalastjórn.
| Dagsetning | Dagskrá | Tími | Kennari |
|---|---|---|---|
| 19.10.2020 | Skjalastjórnun: Rekjanleiki, verklag og ábyrgð | 13:00 | Ragna Kemp Haraldsdóttir |